Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, gerði hræðileg mistök í aðdraganda sigurmarks Young Boys í fyrsta leik riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Man Utd lék vel fyrstu mínútur leiksins. Þeir komust yfir á 13. mínútu þegar Cristiano Ronaldo kom boltanum í netið eftir frábæra sendingu inn fyrir frá Bruno Ferndandes.
Á 35. mínútu breyttist leikurinn mikið. Þá fékk Aaron Wan-Bissaka, bakvörður Man Utd, beint rautt spjald fyrir klaufalega tæklingu á Christopher Martins.
Gestirnir frá Manchester fóru þó með 0-1 forystu inn í hálfleikinn.
Manni fleiri voru Young Boys betri í seinni hálfleik. Nicolas Moumi Ngamaleu skoraði verðskuldað jöfnunarmark fyrir þá á 66. mínútu. Hann stýrði þá fyrirgjöf Silvan Hefti í netið.
Heimamenn voru líklegri aðilinn til að finna sigurmark leiksins. Það kom svo á fimmtu mínútu uppbótartímans. Þá átti varamaðurinn Lingard hræðilega sendingu til baka sem Jordan Siebatcheu komst inn í og skoraði. Lokatölur 2-1.
Þessa skelfilegu sendingu Lingard, sem og mikinn fögnuð leikmanna og stuðningsmanna Young Boys, má sjá með því að smella hér.