Eiríkur Guðmundsson látinn Jakob Bjarnar skrifar 9. ágúst 2022 12:36 Útvarpsmaðurinn og rithöfundurinn Eiríkur Guðmundsson er látinn, aðeins 52 ára að aldri. Vísir/Vilhelm Eiríkur Guðmundsson útvarpsmaður og rithöfundur er látinn aðeins 52 ára að aldri, hann fæddist þann 28. september 1969 í Bolungarvík.
Eiríkur starfaði árum saman sem þáttastjórnandi á Rás eitt og stýrði þar meðal annars menningarþáttunum Víðsjá og Lestinni. Hann gat sér orð fyrir skapandi og vönduð efnistök, pistlar hans um menningar- og þjóðmál vöktu athygli og viðtöl hans við bókmenntafólk og aðra voru ígrunduð þannig að eftir var tekið. Reyndar er óhætt að fullyrða að Eiríkur hafi um árabil verið einn eftirtektarverðasti útvarpsmaður landsins. Eiríkur útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund árið 1988, lauk B.A. prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og M.A. prófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla. Eiríkur var áhugamaður um tónlist, fékkst sjálfur við að leika á píanó og semja lög. Þá lét hann sé ekki nægja að fjalla um bókmenntir, sjálfur sendi hann frá sér skáldsögur. Sú fyrsta ber titilinn 39 þrep til glötunar, hún kom út árið 2004 og vakti þá þegar verulega athygli. Enginn byrjendabragur var á verkinu en seinna komu út bækurnar Undir himninum, 1983 og Ritgerð mín um sársaukann. Þá sendi Eiríkur frá sér bók sem fjallar um skáldskap Steinars Sigurjónssonar og ritstýrði heildarútgáfu á verkum hans. Vísir ræddi við Eirík í tilefni af útkomu bókar hans Ritgerð mín um sársaukann og birtist viðtalið í október 2018. Þar segir Eiríkur meðal annars: „Ég veit ekki hver ég er, og þess vegna skrifa ég. Þegar ég kemst að því hver ég er, hætti ég að skrifa og fer að semja tónlist, dægurlög. Það er mér ekki nóg að tala í útvarpið, jafn gaman og mér finnst að tala í útvarpið, ég elska það, en það er ýmislegt sem maður getur ekki sagt í útvarp, og maður færir það í skáldskap, ég skálda auðvitað í útvarpið, en svo er annað sem er hættulegra og það á ekki heima í útvarpi, heldur skáldskap.“ Er skáldskapur hættulegri en útvarpið? Býr meiri háski í því að sitja við skriftir en vera í beinni útsendingu? „Skáldskapur er hættulegasti hlutur í heimi. Hann er svo hættulegur að það ætti enginn að koma nálægt honum, og helst ekki lesa alvöru skáldskap. Það er ávísun á glötun. Beinar útsendingar eru hressandi, en fara sannarlega illa með mann, fari þær margar saman í röð eins og í mínu tilfelli, jafnvel lífshættulegar, eins og dæmin sanna. Ég hef upplifað það og gæti sagt af því langa sögu. En það er skáldskapurinn sem brjóst vor brennir, svo ég vitni í Stein sem kemur því miður mjög við sögu í minni bók.“ Eiríkur lætur eftir sig einn son, Kolbein Orfeus og stjúpdóttur, Vöku Blöndal.
Andlát Bókmenntir Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira