Hækkar framlög um 1.550 milljónir

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Kristinn Magnússon

Útgjaldajöfnunarframlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækkar um 1.550 milljónir vegna þessa árs og nemur áætlað útgjaldajöfnunarframlag skv. A-hluta framlaganna því 9.000 milljónum króna. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, samþykkti tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um þetta í dag. 

„Áætlað framlag vegna B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga ársins nemur 575 m.kr. en í lok ársins verður úthlutað 175 m.kr. á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2020 umfram tekjur. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks úr dreifbýli. Samtals nema því útgjaldajöfnunarframlög 9.800 m.kr. á árinu 2020,“ segir í tilkynningu frá samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu.

„Hækkun útgjaldajöfnunarframlaga byggir m.a. á heimild í lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem heimilar Jöfnunarsjóði að nýta allt að 1.500 m.kr. úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til greiðslu almennra jöfnunarframlaga sjóðsins. Ráðherra hefur jafnframt samþykkt tillögu nefndarinnar um hækkun framlaga vegna lækkunar fasteignaskattstekna á árinu 2020 og nemur hækkunin 274,7 m.kr.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert