Sakfelldur fyrir að nauðga dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar eftir sýknu í héraði Eiður Þór Árnason skrifar 26. febrúar 2021 17:13 Málið var fyrst tekið fyrir í Landsrétti í janúar í fyrra. Vísir/Vilhelm Karlmaður var í dag sakfelldur í Landsrétti fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Einnig var hann sakfelldur fyrir vörslu kókaíns og fyrir að hafa skoðað 85 ljósmyndir og eitt myndband sem sýndu börn á kynferðislegan hátt í farsíma sínum.
Maðurinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi en við ákvörðun refsingar var litið til þess að með háttsemi sinni nýtti maðurinn sér yfirburðastöðu sína gagnvart brotaþola og traust hennar og trúnað sem sambýlismaður móður hennar. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður sýknað manninn af ákæru fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn stúlkunni en Landsréttur taldi það hafið yfir skynsamlegan vafa að hinn ákærði hafi gerst sekur um háttsemina. Héraðsdómur sakfelldi hins vegar manninn fyrir hin tvö brotin og staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu. Málið var fyrst tekið fyrir í Landsrétti í janúar 2020 en Hæstiréttur ómerkti þann dóm í október vegna annmarka á sönnunarmati og vísaði málinu aftur til Landsréttar. Hinn sakfelldi viðurkenndi fíkniefnalagabrotið en gekkst ekki við hinum ásökununum. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að hafa snert kynfæri og rass stúlkunnar. Héraðsdómur taldi framburð stúlkunnar vera ótraustan Í sýknudómi héraðsdóms var byggt á því að framburður stúlkunnar hafi verið misvísandi um nokkur atriði og verið svo ótraustur að ekki væri unnt að útiloka áhrif annarra, einkum móður, á framburð hennar. Þá hafi frásögn brotaþola verið misvísandi um hvar brotið eigi að hafa verið framið. „Í því ljósi, en einnig að gættum öðrum atriðum sem nefnd voru í forsendum dómsins, þótti ekki unnt að slá því föstu, svo að hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að ákærði hefði gerst sekur um þá háttsemi sem hann er sakaður um samkvæmt þessum ákærulið.“ Sagðist hafa náð óvart í myndirnar Fram kemur í dómi Landsréttar að ljóst sé að framburður stúlkunnar í fyrri skýrslutöku væri ólíkur þeim sem hún gaf við síðari skýrslutöku en hann væri samt sem áður trúverðugur. „Þegar lagt er mat á trúverðugleika síðari framburðar brotaþola verður að líta til þess að hún var nýlega orðin […] ára gömul þegar hún gaf skýrsluna. Verður að fallast á með ákæruvaldinu að almennt sé ólíklegt að svo ungir brotaþolar geti lýst atvikum með þeim hætti sem brotaþoli gerði án þess að hafa upplifað þau sjálf,“ segir í dómi Landsréttar. Í tengslum við barnaníðsefnið þá skýrði maðurinn tilvist myndanna í síma sínum með því að hann hafi verið í samskiptum á spjallsíðu á netinu þar sem fólk væri að skiptast á klámmyndum. Hann hafi þá ýtt á einhvern hlekk sem þar var sendur sem færði hann inn á einhverja aðra netsíðu og hafi umræddar myndir þá vistast óumbeðið í síma hans. Þá hafi hann séð að eitthvað var athugavert við myndirnar og farið strax út af síðunni. Landsréttur taldi þessar skýringar ótrúverðugar, einkum með tilliti til þeirra gagna sem lögregla hafði handlagt úr síma hans. Bentu þau meðal annars til þess að hann hafi skoðað sumar myndirnar ítrekað.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fleiri fréttir Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun Sjá meira