Fótbolti

Fulltrúar FIFA fylgjast með stöðunni hjá KSÍ og buðu fram hendur á dekk

Sindri Sverrisson skrifar
Fulltrúar FIFA heimsóttu höfuðstöðvar KSÍ í Laugardalnum í vikunni.
Fulltrúar FIFA heimsóttu höfuðstöðvar KSÍ í Laugardalnum í vikunni. vísir/vilhelm

„FIFA vill bara vera upplýst um stöðuna og býður fram aðstoð eins og þarf,“ segir Ómar Smárason, deildarstjóri samskiptadeildar KSÍ, um komu tveggja fulltrúa FIFA til landsins. Fulltrúarnir sátu fund fráfarandi stjórnar KSÍ á þriðjudag.

Bæði FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, og UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hafa í þessum mánuði sent fulltrúa til landsins til að kynna sér betur stöðuna eftir að formaður og stjórn KSÍ sögðu af sér í lok ágúst. Forysta KSÍ hafði þá verið harðlega gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi varðandi frásagnir af ofbeldi leikmanna karlalandsliðsins.

Nodar Akhalkatsi og Charles Boorman sátu fund stjórnar á þriðjudag fyrir hönd FIFA. Ómar segir þá fyrst og fremst hafa verið þar til að bjóða fram aðstoð FIFA vegna aukaþingsins sem fram fer á laugardaginn eftir viku.

„FIFA setti sig í samband við okkur núna í haust þegar það spurðist út hvað hefði verið í gangi hérna. Við höfum verið í reglulegum samskiptum síðan þá. Þau hafa óskað eftir upplýsingum, við höfum látið þau fá allar upplýsingar sem þau vilja, og þau hafa bara boðið fram stuðning og aðstoð. Hluti af því var að koma hingað, hittast og tala saman,“ segir Ómar. Ekkert hafi gefið til kynna að FIFA væri að búa sig undir að taka yfir stjórn KSÍ:

„Nei, ég hef ekkert séð um það alla vega. Við höfum bara haldið þeim vel upplýstum um hvað er í gangi hjá okkur og það er bara lykilatriðið; að FIFA viti hvað er í gangi. Þannig geta þau hjálpað okkur.“

Fulltrúar UEFA og FIFA á þinginu samkvæmt venju

Í fundargerð frá síðasta stjórnarfundi segir um heimsókn FIFA að fulltrúarnir tveir hafi boðið fram stuðning við stjórn og skrifstofu í aðdraganda aukaþingsins. Í hverju felst sá stuðningur?

„Í sjálfu sér voru þau bara að bjóða hendur á dekk. Þetta var bara opið boð um hvort FIFA gæti hjálpað til með eitthvað. Við höfum auðvitað mestu þekkinguna á því hvernig á að framkvæma þing KSÍ en þetta var bara almennt boð um aðstoð,“ segir Ómar. FIFA hefur svo boðið áframhaldandi stuðning eins og á þarf að halda eftir þingið.

Ómar segir að fulltrúi frá UEFA hafi komið fyrr í þessum mánuði í sama tilgangi; til að kynna sér betur stöðuna hjá íslenska sambandinu.

Á þinginu á Hilton Reykjavík Nordica eftir rúma viku verða fulltrúar frá UEFA og FIFA á svæðinu en Ómar segir að þannig hafi það verið á síðustu ársþingum og sé jafnan á ársþingum knattspyrnusambanda í heiminum.


Tengdar fréttir

Helga býður sig fram í stjórn KSÍ

Helga Helgadóttir, íþróttastjóri knattspyrnudeildar Hauka og þjálfari, hefur ákveðið að sækjast eftir kjöri í stjórn Knattspyrnusambands Íslands á sérstöku aukaþingi sem haldið verður eftir rúma viku.

Fundirnir sem leiddu til falls Guðna og stjórnar KSÍ

Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, lagði til að hann myndi víkja sæti tímabundið en stjórn sambandsins samþykkti ekki þá tillögu. Í kjölfarið ákvað Guðni að segja af sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×