Hjónabandið ekki komið svo langt að mikið sé rifist Sindri Sverrisson skrifar 27. október 2020 16:46 Þorvaldur Sigurðsson og Halldór Örn Tryggvason ræddu við Henry Birgi Gunnarsson. stöð 2 sport „
Við eigum eftir að fara upp brekkur og niður þær en stigin munu koma, ég skal lofa því,“ segir Þorvaldur Sigurðsson, annar tveggja þjálfara handboltaliðs Þórs á Akureyri. Eftir að samstarfi Þórs og KA um Akureyri Handboltafélag lauk hófu Þórsarar að spila á ný undir eigin merkjum á síðustu leiktíð, og komust beint upp í Olís-deildina. Þorvaldur og Halldór Örn Tryggvason stýra liðinu saman og hafa farið ágætlega af stað með nýliðana á stóra sviðinu, en Þór er með tvö stig eftir fyrstu fjóra leikina. Henry Birgir Gunnarsson, stjórnandi Seinni bylgjunnar á Stöð 2 Sport, tók þjálfarana tali í Akureyrarheimsókn sinni á dögunum: „Samstarfið gengur mjög vel. Við höfum gert þetta áður og þá gekk það mjög vel. Valdi hefur kannski aðra sögu að segja,“ sagði Halldór léttur. Þorvaldur tók undir og sagði þá lítið hafa rifist: „Þetta hjónaband er nú ekki alveg komið svo langt. Það hlýtur nú örugglega að koma sá tími hjá okkur að við lendum eitthvað uppi á móti hvor öðrum, en ég held að við séum það miklir félagar að við leysum það bara í bróðerni.“ Þórsarar eru mættir í deild þeirra bestu að nýju undir eigin merkjum.stöð 2 sport Búast má við því að Þórsarar verði í fallbaráttu í vetur en Henry spurði þjálfarana út í það hver framtíðarsýnin væri hjá félaginu og hvað það hefði í för með sér ef liðið félli: „Það er rosalega erfitt að segja núna, en við höldum bara áfram að byggja upp. Við erum með flotta yngri flokka, fullt af ungum drengjum sem eru tilbúnir að berjast fyrir klúbbinn,“ sagði Halldór. Vel gangi með rekstur yngri flokka í samkeppni við KA og aðrar íþróttagreinar. „Þetta er okkar annað ár undir merkjum Þórs. Fyrir mér hefur þetta mikla þýðingu. Ég er borinn og barnfæddur hérna upp frá og það er bara voðalega krúttlegt „concept“ að vera kominn heim og aftur undir merki Þórs. Við erum að búa til okkar gildi og okkar farveg, og það tekur bara tíma. Við höldum bara áfram,“ sagði Þorvaldur. Excel-skjalið segir eitt félag en skemmtilegra að hafa tvö Aðspurður hvort söknuður væri að Akureyri Handboltafélagi svaraði Þorvaldur: „Auðvitað er alltaf söknuður að einhverju sem að var gott og skemmtilegt, og samstaða um á sínum tíma, en maður þarf að kunna að setja það ofan í skúffu þegar það er búið. Það var flott „concept“ á meðan það var.“ Halldór viðurkenndi að líklega væri skynsamlegra að eitt handboltafélag væri á Akureyri í stað tveggja: „Excel-skjalið segir eitt en upp á skemmtilegheitin er betra að hafa tvö. Það er mjög þungur róður að hafa tvö lið en við getum það núna og þá höldum við áfram.“ Innslagið má sjá í heild sinni hér að neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Þorvaldur og Halldór
Olís-deild karla Þór Akureyri Seinni bylgjan Tengdar fréttir Kominn í Olís deildina eftir hryggbrot og meira en tíu ára fjarveru frá handbolta Aðalsteinn Ernir Bergþórsson hefur vakið athygli í vörn Þórsara í Olís deild karla í handbolta en hann á allt aðra sögu en flestir leikmenn deildarinnar. 27. október 2020 14:00 Topp fimm hjá Jóhanni Gunnari: Traustir menn í Olís deildinni sem gætu séð um börnin hans ef hann félli frá Jóhann Gunnar Einarsson setti saman fróðlegan topp fimm lista undir dramatískum formerkjum í Seinni bylgjunni í gærkvöldi. 27. október 2020 12:30 Martha: Gat ekki hætt án þess að fá að njóta þess að spila síðasta leikinn Martha Hermannsdóttir gengur vel að spila handbolta í Olís deildinni meðfram því að reka tannlæknastofu. Hún hefur verið á leiðinni að hætta í mörg ár en er samt enn að spila með liði KA/Þór. 27. október 2020 11:00 Mest lesið Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Enski boltinn Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn Í beinni: Víkingur - KA | Ná KA-menn að stríða toppliðinu? Íslenski boltinn Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Enski boltinn Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot Sjá meira
Kominn í Olís deildina eftir hryggbrot og meira en tíu ára fjarveru frá handbolta Aðalsteinn Ernir Bergþórsson hefur vakið athygli í vörn Þórsara í Olís deild karla í handbolta en hann á allt aðra sögu en flestir leikmenn deildarinnar. 27. október 2020 14:00
Topp fimm hjá Jóhanni Gunnari: Traustir menn í Olís deildinni sem gætu séð um börnin hans ef hann félli frá Jóhann Gunnar Einarsson setti saman fróðlegan topp fimm lista undir dramatískum formerkjum í Seinni bylgjunni í gærkvöldi. 27. október 2020 12:30
Martha: Gat ekki hætt án þess að fá að njóta þess að spila síðasta leikinn Martha Hermannsdóttir gengur vel að spila handbolta í Olís deildinni meðfram því að reka tannlæknastofu. Hún hefur verið á leiðinni að hætta í mörg ár en er samt enn að spila með liði KA/Þór. 27. október 2020 11:00
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn