Fyrsti útisigur strákanna vannst í Lúxemborg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2020 16:57 Sveinn Aron Guðjohnsen er búinn að skora fjögur mörk í þessari undankeppni. Vísir/Vilhelm
Íslenska 21 árs landsliðið vann 2-0 sigur á heimamönnum í Lúxemborg í dag í undankeppni EM en þetta voru fyrstu stig íslensku strákanna á útivelli í undankeppninni. Íslensku strákarnir voru manni fleiri síðasta hálfltíma leiksins en tókst ekki að bæta við mörkin tvö sem liðið skoraði með tveggja mínútna millibili í fyrri hálfleiknum. Ísak Óli Ólafsson, miðvörður Sönderjyske, og Sveinn Aron Guðjohnsen, framherji OB, skoruðu mörk íslenska liðsins í fyrri hálfleiknum. Íslenska liðið hafði unnið alla fjóra heimaleiki sína í keppninni til þessa en tapað báðum útileikjunum með markatölunni 0-8 á móti Svíum og Ítölum. Nú kom því bæði fyrsta markið og fyrstu stigin á útivelli. Íslenska liðið er með 15 stig eftir sjö leiki en liðið er í harðri toppbaráttu í riðlinum við Írland, Ítalíu og Svíþjóð. Það er mikil spenna á toppnum en Ísland og Ítalía eiga leik inni eftir að leik þjóðanna síðasta föstudag var frestað eftir hópsmit innan ítalska liðsins. Íslenska liðið skoraði tvö mörk með tveggja mínútna millibili eftir hálftíma leik. Miðvörðurinn Ísak Óli Ólafsson skoraði fyrra markið á 30. mínútu eftir hornspyrnu frá Ísaki Bergmann Jóhannessyni. Sveinn Aron Guðjohnsen kom íslenska liðinu í 2-0 tveimur mínútum síðar en Sveinn Aron skoraði líka fyrsta mark leiksins í heimaleiknum á móti Lúxemborg auk þess að skora sigurmörkin í 1-0 sigrum á Írum og Svíum. Fyrirliðinn Alfons Sampsted fiskaði tvö gul spjöld á Gianni Medina með níu mínútna millibili i seinni hálfleik og Medina fékk því rautt spjald á 62. mínútu. Íslenska liðið náði ekki að bæta við mörkum manni færri.
Fótbolti Mest lesið Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Tveir Færeyingar til silfurliðsins Handbolti Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar Sport „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Íslenski boltinn „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Íslenski boltinn Courtois byrjar úrslitaleikinn Fótbolti Benedikt tekinn við Stólunum Körfubolti Pressa Þjóðverja bar loks árangur Fótbolti Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Courtois byrjar úrslitaleikinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Pressa Þjóðverja bar loks árangur Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Orri skoraði þegar FCK tryggði sér Evrópusæti „Er það ekki alltaf þannig að heitasti leikmaðurinn tekur víti?“ „Mannleg mistök geta alltaf komið fyrir“ Einkunnir Íslands: Glódís dró vagninn í Austurríki Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Tveir leikmenn utan hóps vegna klúðurs KSÍ Líkti stórleiknum við messu: „Saknaði tryllingsins“ Fjögurra mánaða bann fyrir að sýna ekki stuðning við hinsegin fólk Uppgjör: Austurríki - Ísland 1-1 | Fyrirliðinn bjargaði stigi með marki af vítapunktinum Ætla að sniðganga Dortmund útaf samstarfi við vopnaframleiðanda Leikdagurinn: Væri líklega kokkur ef frændurnir hefðu ekki látið hana standa í marki „Ég þurfti meira á þessu að halda en ég áttaði mig á“ Mourinho að taka við liði í Tyrklandi Þvertekur fyrir að hafa unnið gegn Óskari „Ég hef mjög gaman af því að æsa Arnar upp“ Leikmannsamtökin hóta verkfalli Sjáðu Víkinga ná stigi í uppbótatíma og Valsmenn leika sér að Stjörnunni Þróttarar langöflugastir í sölu á varningi og veitingum „Óverðskuldað stig sem Víkingar fara með af Kópavogsvelli“ „Ætla ekki að gráta þessi úrslit of mikið“ „Svekkjandi, en myndi ekki segja að þetta séu vonbrigði“ Fram og Grótta jöfn á toppnum „Búið að sitja aðeins í manni“ Sjá meira