Íslenskt mark mánaðarins í Noregi (myndskeið)

Amanda Jacobsen Andradóttir
Amanda Jacobsen Andradóttir Ljósmynd/Vålerenga

Knattspyrnukonan Amanda Andradóttir skoraði fallegasta mark júnímánaðar í norsku úrvalsdeildinni að mati stuðningsmanna.

Hún skoraði fjórða mark Vål­erenga þegar liðið gjör­sigraði Klepp með sjö mörk­um gegn engu 26. júní síðastliðinn.

Amanda fékk 42 prósent atkvæða í kosningunni um mark mánaðarins og hér fyrir neðan má sjá hvers vegna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert