Giannis stoppaði í bílalúgu með bikarana og pantaði fimmtíu kjúklinganagga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júlí 2021 12:00 Giannis Antetokounmpo var sæll en svangur daginn eftir að hafa orðið NBA-meistari. getty/Jonathan Daniel Daginn eftir að hafa orðið NBA-meistari með Milwaukee Bucks renndi Giannis Antetokounmpo við í bílalúgu og pantaði sér fimmtíu kjúklinganagga. Giannis skoraði fimmtíu stig þegar Milwaukee tryggði sér sinn fyrsta meistaratitil í fimmtíu ár með sigri á Phoenix Suns, 105-98, aðfaranótt miðvikudags. Grikkinn var valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins sem Milwaukee vann, 4-2. Daginn eftir stærstu stund ferilsins kom Giannis við í bílalúgunni hjá Chick-Fil-A og var með bikarana tvo með sér, Larry O'Brien meistarabikarinn og Bill Russell bikarinn sem er veittur besta leikmanni úrslitaeinvígisins. Giannis var skiljanlega hinn kátasti, þrátt fyrir að hafa ekkert sofið, og greinilega svangur því hann pantaði fimmtíu kjúklinganagga. Hann skoraði einmitt fimmtíu stig í sjötta leiknum gegn Phoenix eins og áður sagði. „Ég ætti að vera að djamma í Vegas núna en er hérna að panta Chick-Fil-A,“ sagði Giannis á Instagram. „Ég sleppi þeim ekki úr augsýn. Hvað ef ég vakna allt í einu og þetta er allt saman draumur? Bikararnir eru öryggið mitt. Ég snerti þá og veit að þetta er raunverulegt.“ Giannis isn t letting go of the Larry O Brien trophy. He took it with him to @ChickfilA, ordered 50 nuggets, and tried to get free meals for life pic.twitter.com/KPnZXLD5IM— The Athletic (@TheAthletic) July 21, 2021 Í úrslitaeinvíginu gegn Phoenix var Giannis með 35,2 stig, 13,2 fráköst og 5,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann var valinn verðmætasti leikmaður NBA 2019 og 2020 og varnarmaður ársins 2020. Þá fékk hann verðlaun fyrir mestu framfarir 2017. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. NBA Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúlan, NBA, ítalski og PGA-meistaramótið Sport Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Giannis skoraði fimmtíu stig þegar Milwaukee tryggði sér sinn fyrsta meistaratitil í fimmtíu ár með sigri á Phoenix Suns, 105-98, aðfaranótt miðvikudags. Grikkinn var valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins sem Milwaukee vann, 4-2. Daginn eftir stærstu stund ferilsins kom Giannis við í bílalúgunni hjá Chick-Fil-A og var með bikarana tvo með sér, Larry O'Brien meistarabikarinn og Bill Russell bikarinn sem er veittur besta leikmanni úrslitaeinvígisins. Giannis var skiljanlega hinn kátasti, þrátt fyrir að hafa ekkert sofið, og greinilega svangur því hann pantaði fimmtíu kjúklinganagga. Hann skoraði einmitt fimmtíu stig í sjötta leiknum gegn Phoenix eins og áður sagði. „Ég ætti að vera að djamma í Vegas núna en er hérna að panta Chick-Fil-A,“ sagði Giannis á Instagram. „Ég sleppi þeim ekki úr augsýn. Hvað ef ég vakna allt í einu og þetta er allt saman draumur? Bikararnir eru öryggið mitt. Ég snerti þá og veit að þetta er raunverulegt.“ Giannis isn t letting go of the Larry O Brien trophy. He took it with him to @ChickfilA, ordered 50 nuggets, and tried to get free meals for life pic.twitter.com/KPnZXLD5IM— The Athletic (@TheAthletic) July 21, 2021 Í úrslitaeinvíginu gegn Phoenix var Giannis með 35,2 stig, 13,2 fráköst og 5,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann var valinn verðmætasti leikmaður NBA 2019 og 2020 og varnarmaður ársins 2020. Þá fékk hann verðlaun fyrir mestu framfarir 2017. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúlan, NBA, ítalski og PGA-meistaramótið Sport Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik