Aron skoraði fimm í yfirburðasigri

Aron Pálmarsson í leik með Barcelona.
Aron Pálmarsson í leik með Barcelona. Ljósmynd/Barcelona

Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona höfðu mikla yfirburði í kvöld þegar þeir tóku á móti Zagreb frá Króatíu í Meistaradeild Evrópu í handknattleik.

Barcelona sigraði 45:27 eftir að staðan var 24:13 í hálfleik og spænska meistaraliðið hefur unnið fjóra fyrstu leiki sína í keppninni. Aron skoraði 5 mörk fyrir Barcelona í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert