Vörnin 95 prósent hjá Pfizer sem sækir um neyðarleyfi á næstu dögum Kristín Ólafsdóttir skrifar 18. nóvember 2020 14:25 Niðurstöðurnar eru í takt við bráðabirgðaniðurstöður sem Pfizer kynnti í síðustu viku. Getty/Jakub Porzycki/NurPhoto
Bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech veitir 95 prósent vörn gegn kórónuveirunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pfizer, sem nú hefur lokið þriðja stigi prófana á efninu. Gert er ráð fyrir að sótt verði um neyðarleyfi fyrir efninu á næstu dögum. Niðurstöðurnar eru í takt við bráðabirgðaniðurstöður sem Pfizer kynnti í síðustu viku, fyrst lyfjafyrirtækja sem standa að þróun bóluefnis við kórónuveirunni. Þær niðurstöður gáfu til kynna að efnið veitti 90 prósent vörn, sem þótti framar vonum. Í tilkynningu frá Pfizer í dag segir eins og áður kom fram að vörn gegn veirunni mælist 95 prósent 28 dögum eftir fyrsta skammt. Metnir voru 170 einstaklingar sem veiktust, þar af höfðu 162 fengið lyfleysu en átta bóluefnið. Þá er virknin sögð sú sama þvert á aldurshópa, kyn og kynþátt. Vörn hjá eldri en 65 ára mældist 94 prósent. Enn fremur segir í tilkynningu að bóluefnið sé öruggt. Einu merkjanlegu aukaverkanirnar hafi verið þreyta í 3,8 prósent tilvika og höfuðverkur í 2 prósent tilvika. Öryggisviðmið Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitsins (FDA) til að sækja um neyðarleyfi fyrir efninu hafi jafnframt verið uppfyllt. Pfizer kveðst nú stefna að því að sækja um slíkt leyfi til FDA á allra næstu dögum. Líkt og áður hefur komið fram er framleiðslugeta Pfizer um 50 milljón skammtar á þessu ári. Fyrirtækið kveðst geta framleitt 1,3 milljarða skammta til viðbótar á næsta ári og væntir þess að geta dreift efninu um allan heim. Bóluefni Pfizer er gefið í tveimur skömmtum. Geyma þarf efnið við 70 til 80 stiga frost. Bandaríski lyfjaframleiðandinn Moderna tilkynnti nú í vikunni að bóluefni fyrirtækisins við kórónuveirunni veiti 95 prósent vörn. Pfizer og Moderna eru komin lengst þeirra fyrirtækja sem þróað hafa bóluefni undanfarna mánuði. Bæði efnin eru svokölluð RNA-bóluefni og þróuð á svipaðan máta. Íslandi er tryggt aðgengi að bóluefni í gegnum Evrópusambandið, sem þegar hefur undirritað samning við fjóra framleiðendur, þ. á m. Pfizer/BioNTech.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Lyf Tengdar fréttir Spyr hvort heilbrigðisráðherra sé að grínast Líftölfræðingur við Háskóla Íslands spyr hvort heilbrigðisráðherra sé að gera að gamni með fullyrðingum um venjulegra líf þegar búið verði að bólusetja viðkvæmustu hópana og framlínufólk. 18. nóvember 2020 01:17 Forstjóri Moderna segir enn mikið verk fyrir höndum Nýtt bóluefni bandaríska lyfjafyrirtækisins Moderna sem var kynnt í gær er sagt veita 95 prósenta vörn, geymast vel án þess að þurfa að vera í frosti og veita sérstaklega mikla viðspyrnu gegn alvarlegum veikindum af völdum kórónuveirunnar. 17. nóvember 2020 08:12 Moderna-bóluefnið virðist vernda sérstaklega gegn alvarlegum veikindum Prófessor í ónæmisfræði segir að geymsluþol nýs bóluefnis lyfjafyrirtækisins Moderna muni koma sér vel fyrir fátækari ríki, sem ekki eigi jafnauðvelt með að geyma bóluefni í miklu frosti. 16. nóvember 2020 17:32 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Sjá meira
Spyr hvort heilbrigðisráðherra sé að grínast Líftölfræðingur við Háskóla Íslands spyr hvort heilbrigðisráðherra sé að gera að gamni með fullyrðingum um venjulegra líf þegar búið verði að bólusetja viðkvæmustu hópana og framlínufólk. 18. nóvember 2020 01:17
Forstjóri Moderna segir enn mikið verk fyrir höndum Nýtt bóluefni bandaríska lyfjafyrirtækisins Moderna sem var kynnt í gær er sagt veita 95 prósenta vörn, geymast vel án þess að þurfa að vera í frosti og veita sérstaklega mikla viðspyrnu gegn alvarlegum veikindum af völdum kórónuveirunnar. 17. nóvember 2020 08:12
Moderna-bóluefnið virðist vernda sérstaklega gegn alvarlegum veikindum Prófessor í ónæmisfræði segir að geymsluþol nýs bóluefnis lyfjafyrirtækisins Moderna muni koma sér vel fyrir fátækari ríki, sem ekki eigi jafnauðvelt með að geyma bóluefni í miklu frosti. 16. nóvember 2020 17:32