Syngjandi leigubílstjóri í Rangárvallasýslu Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 6. mars 2021 07:14 Jón Taxi eins og hann er alltaf kallaður við nýja bílinn sinn, sem er númer þrettán af þeim Land Cruiserum, sem hann hefur keypt hjá Toyota á Selfossi. Magnús Hlynur Hreiðarsson Leigubílstjóri í Rangárvallasýslu segir rólegt í akstri á tímum Covid, það sé helst um helgar, sem nokkrir túrar komi. Bílstjórinn er duglegur að syngja fyrir farþega sína og hann var að kaupa sinn þrettánda Land Cruiser leigubílinn sinn.
Jón Pálsson er annar af tveimur leigubílstjórum í Rangárvallasýslu. Hann hefur keyrt leigubíl í 14 ár og segist vera í draumastarfinu enda mikill bíladellukarl og hefur gaman að samskiptum við fólk. Hann passar alltaf að hafa bílinn hreinan og snyrtilegan og hann er sérstaklega hrifin af rauðum bílum. „Ég er búin að eiga þrjá svona rauða, mér líkar vel við þennan lit, hann sést vel og svo set ég crom á hann og þá kemur hann fínt út. Konurnar eru hrifnar af svona rauðum bílum, það má ekki gleyma konunum,“ segir Jón og hlær. En hvernig er staðan hjá Jóni, er eitthvað að gera í leigubílaakstri á heimsfaraldri? „Það er mjög dapurt, það er eiginlega ekkert að gera, nokkrir túrar um helgar en ég er bjartsýnn á framhaldið, þetta lagast þegar líður á sumarið.“ Jón sem varð 70 ára á dögunum gaf sér nýjan Land Cruiser í afmælisgjöf, sem hann keypti hjá Toyota á Selfossi en þetta er þrettándi Land Cruiserinn, sem hann kaupir þar, þann fyrsta keypti hann 2001. Jón fer víða um á leigubílnum sínum og brestur í söng fyrir farþega sína þegar það liggur þannig á honum. „Jón er einn af þessum topp kúnnum hjá okkur, búin að versla marga bíla, þrettán stykki ef ég man rétt. Ég held ég geti sagt að hann sé með smá bíladellu., hann vill hafa bílana fallega og góða,“ segir Haukur Baldvinsson hjá Toyota á Selfossi. Jón gerir allt til að gleðja farþega sína og ef það liggur sérstaklega vel á honum þá syngur hann undir stýri við góðar undirtektir. Jón fékk að sjálfsögðu blómvönd þegar hann fékk nýja bílinn afhentan á dögunum.Aðsend
Rangárþing ytra Rangárþing eystra Bílar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira