Hviður munu ná 60 metrum á sekúndu

Veðurstofa Íslands stendur vaktina í dag og gefur út veðurviðvaranir.
Veðurstofa Íslands stendur vaktina í dag og gefur út veðurviðvaranir. mbl.is/Arnþór Birkisson

Veður mun versna eftir því sem líður á daginn og alveg fram á kvöld á Suðausturlandi. Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir mjög stífum meðalvindi upp að 33 m/s og hviðum upp í 60 m/s.

„Þetta er mjög slæmt og óvenjulegt þótt það sé ekki einsdæmi á þessum árstíma,“ segir Eiríkur Örn Jóhannesson veðurfræðingur á veðurstofunni í samtali við mbl.is. Hann segir þetta keimlíkt óveðri sem var í janúarmánuði 2021.

Vindstyrkurinn meiri en í fellibylnum Fíónu

Hviðurnar munu að sögn Eiríks ná nærri 60 m/s sem er ríflega 215 kílómetrar á klukkustund. Til samanburðar má benda á fellibylinn Fíonu sem gengur yfir Kanada um þessar mundir en þar nær vindstyrkurinn 160 kílómetra hraða.

Eiríkur segir að það sé nokkur úrkoma á Norðausturlandi og svolítil úrkoma til fjalla þar en ekki teljandi úrkoma í öðrum landshlutum.

Óbein tengsl við óveður úti í heimi

Eiríkur segir lægðina sem gengur yfir landið ekki leifar af neinum fellibyl þótt öfgaveður í Kanada hafi áhrif á veðráttuna hér.

„Vissulega bar hann heitara loft til okkar óbeint. Hlýja loftið sem við fundum í gær skapar óstöðugleika í lofthjúpnum. Þetta eru ekki leifar af honum en hann skapar óstöðugt ástand,“ segir Eiríkur.

Eins og í Kanada hefur lægðin valdið víðtækum rafmagnstruflunum á Norður- og Austurlandi. Þá hefur vatn gengið á land á Akureyri og flætt inn í hús.

Nái hámarki um kvöldmatarleytið

Rauð viðvör­un er í gildi vegna veðurs á Aust­fjörðum og app­el­sínu­gul á Norður­landi eystra, Aust­ur­landi að Glett­ingi, Suðausturandi og miðhá­lendi. Eiríkur segir það versta ekki enn yfirstaðið á Suðausturlandi:

„Þar á eftir að bæta í núna alveg fram eftir degi og verður verst þar undir kvöld að öllum líkindum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert