Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Samúel Karl Ólason skrifar 27. mars 2024 23:28 Útflutningsbann var sett á eldsneyti í Rússlandi í byrjun mánaðarins. EPA/MAXIM SHIPENKOV Ráðamenn í Rússlandi eru sagðir hafa flutt inn eldsneyti frá Belarús í þessum mánuði, vegna samdráttar í framleiðslu. Úkraínumenn hafa gert drónaárásir á þó nokkrar olíuvinnslustöðvar í Rússlandi á undanförnum vikum en útflutningur á eldsneyti var bannaður í upphafi mánaðarins.
Heimildarmenn Reuters í Rússlandi segja viðræður milli ríkisstjórna landanna og forsvarsmanna olíufyrirtækja þeirra um frekari innflutning á eldsneyti eiga sér stað. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rússar flytja inn eldsneyti frá Belarús. Það gerðu þeir einnig síðasta haust og þá var einnig sett á útflutningsbann í Rússlandi. Báðar olíuvinnslur Belarús nota að mestu olíu frá Rússlandi til að framleiða eldsneyti. Fréttaveitan sagði einnig frá því í dag að rússnesk olíufyrirtæki standi frammi fyrir töfum á greiðslum fyrir olíusendingar frá bönkum í Kína, Tyrklandi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Forsvarsmenn þessara banka hafi áhyggjur af refsiaðgerðum Bandaríkjamanna. Komið hefur til þess að bankarnir hafa hafnað því að framkvæma greiðslur til Rússlands eða tafið þær og beðið viðskiptavini sína um að senda skriflega staðfestingu á því að enginn sem beittur hafi verið refsiaðgerðum muni fá umrædda peninga. Von á töluverðri verðhækkun Ráðamenn í Rússlandi ákváðu nýverið að draga úr olíuframleiðslu í sumar. Rússar sögðust hafa framleitt 9,5 milljónir tunna á dag í febrúar en í lok júní á fjöldinn að vera kominn niður í níu milljónir. Greinendur J.P. Morgan telja, samkvæmt frétt Wall Street Journal, að þessi ákvörðun muni leiða til mikillar hækkunar á olíuverði, nema aðrir olíuframleiðendur grípi inn í og auki framleiðslu. Tunna af Brent olíu selst nú á um 85 dali en áðurnefndir greinendur telja að verðið gæti farið í hundrað dali í september, nokkrum mánuðum fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, gæti reynt að draga úr högginu með því að skrúfa frá krönunum á varbirgðum Bandaríkjanna. Talið er að þar sé um 60 milljóna tunna svigrúm, sem gæti fyllt upp í skarðið sem Rússar ætla að skilja eftir sig í fjóra mánuði.
Rússland Belarús Bandaríkin Bensín og olía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Atvinnulíf Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Samstarf Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Viðskipti innlent Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira