fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
433Sport

Segir Manchester United vanta framherja á borð við Harry Kane – Geti þá barist um Englandsmeistaratitilinn

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 1. mars 2021 21:14

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og núverandi sérfræðingur á Skysports, telur að Manchester United þurfi framherja með yfirburðar lægni í því að klára færi, hann segir að það geti á endanum fært þeim Englandsmeistaratitilinn.

Carragher og Mark Hughes, fyrrverandi leikmaður Manchester United, ræddu stöðu Manchester United á tímabilinu í útsendingu í kvöld. Manchester United gerði 0-0 jafntefli við Chelsea í gær.

„Þeim skortir bara gæði á seinasta þriðjungi vallarins, gæði til að klára færin sín,“ sagði Carragher um frammistöðu leikmanna Manchester United í leiknum.

Hann var þá spurður hvort það væri stóra vandamál liðsins.

„Fyrir mitt leyti já. Ég tel að Ole Gunnar Solskjær sé ekki varnarsinnaður knattspyrnustjóri en úrslit Manchester United undanfarið virðast gefa það til kynna. Ég tel að þetta snúist um gæði leikmannahópsins,“ sagði Carragher.

Hann telur að Manchester United vanti framherja sem getur klárað þessa stóru leiki fyrir þá og nefnir leikmann á borð við Harry Kane á nafn.

Manchester United situr í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar leiknar hafa verið 26 umferðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ipswich spilar í ensku úrvalsdeildinni – Voru nýkomnir í næst efstu deild

Ipswich spilar í ensku úrvalsdeildinni – Voru nýkomnir í næst efstu deild
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

UEFA staðfestir breytingarnar – Frábærar fréttir fyrir EM í Þýskalandi

UEFA staðfestir breytingarnar – Frábærar fréttir fyrir EM í Þýskalandi
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Búinn að vinna gullhanskann eftir leikinn í gær

Búinn að vinna gullhanskann eftir leikinn í gær
433Sport
Í gær

Arteta skilur lítið í fréttunum – „Veit ekki hvaðan þær koma“

Arteta skilur lítið í fréttunum – „Veit ekki hvaðan þær koma“
433Sport
Í gær

Xavi grátbiður Börsunga um að kaupa eina af stjörnum City

Xavi grátbiður Börsunga um að kaupa eina af stjörnum City