Icelandair hefur um þrjár vikur til að ná samningum fyrir 30 milljarða hlutafjárútboð til björgunar félaginu Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 10. júlí 2020 19:20 Icelandair VILHELM
Icelandair hefur aðeins rúma tuttugu daga til að ganga frá samingum við lánadrottna, Boeing verksmiðjurnar og flugfreyjur áður en fyrirhugað hlutafjárútboð til björgunar félaginu fer fram í byrjun ágúst. Samninganefndir fyrirtækisins og flugfreyja komu saman til fyrsta fundar í dag eftir að flugfreyjur kolfelldu nýgerðan kjarasamning. Þann 26. júní var kjarasamningur Flugfreyjufélags Íslands kynntur félagsmönnum. Um 400 mættu á fundinn og úr salnum heyrðist reglulega dynjandi lófaklapp. Þá sagði formaður Flugfreyjufélagsins að hún ætti von á að samningurinn yrði samþykktur. „Já ég fer mjög bjartsýn inn í þessa viku og held að við endum með samþykktan samning,“ sagði Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands í viðtali eftir félagsfund Flugfreyjufélags Íslands þann 26. júní þar sem kjarasamningur var kynntur félagsmönnum. 12 dögum síðar var samningurinn kolfelldur. Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hittust í Karphúsinu klukkan þrjú í dag og lauk fundi klukkan hálf sjö. Annar fundur hefur verið boðaður í deilunni klukkan 14 á þriðjudag. Samninganefndir byrjuðu á því að funda í sitt hvoru lagi í dag. Ljóst er að staðan er mjög snúin en forstjóri Icelandair segir að samningurinn hafi verið sá besti sem bauðst. „Við komumst því miður ekkert lengra í þessum viðræðum. Við getum ekki boðið betur en við erum búin að bjóða,“ sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. „Ég myndi halda að það væri öllum til heilla að félagið bakki með sínar kröfur og við getum þá skrifað undir nýjan samning sem yrði vonandi samþykktur,“ sagði Guðlaug. Miðað við þessi orð beggja aðila ertu vongóður um að samningar náist yfir höfuð? „Ég vakna vonglaður á hverjum degi það er ekkert víst að það klikki,“ sagði Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari. Icelandair hefur sagt ætla að ljúka samningum í júlímánuði. Félagið hefur því rúma tuttugu daga til að semja við flugfreyjur auk þess að landa samningi við Boeing verksmiðjurnar vegna Max flugvélanna og afla gríðarlega mikils hlutajár fyrir hlutafjárútboðið sem fram fer í ágúst. Hvað er hægt að gefa þessu margar tilraunir til viðbótar? „Eins margar og þarf,“ sagði Aðalsteinn.
Icelandair Kjaramál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Flugfreyjur og Icelandair á fund ríkissáttasemjara í dag Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Icelandair, hittast á fundi klukkan þrjú hjá ríkissáttasemjara í dag til að fara yfir stöðuna á ný. 10. júlí 2020 07:00 Tekist á um skerðingu á hvíldartíma og aukið vinnuframlag Icelandair er í kapphlaupi við tímann að ljúka samningum við flugfreyjur um kjaraskerðingu og Boeing um afhendingu Max flugvélanna áður en ráðist verður í hlutafjárútboð snemma í næsta mánuði. 9. júlí 2020 19:20 Forstjóri Icelandair segir ekki lengra komist með flugfreyjum Deila Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands er kominn í enn harðari hnút eftir að flugfreyjur felldu nýgerðan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. 8. júlí 2020 20:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira
Flugfreyjur og Icelandair á fund ríkissáttasemjara í dag Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Icelandair, hittast á fundi klukkan þrjú hjá ríkissáttasemjara í dag til að fara yfir stöðuna á ný. 10. júlí 2020 07:00
Tekist á um skerðingu á hvíldartíma og aukið vinnuframlag Icelandair er í kapphlaupi við tímann að ljúka samningum við flugfreyjur um kjaraskerðingu og Boeing um afhendingu Max flugvélanna áður en ráðist verður í hlutafjárútboð snemma í næsta mánuði. 9. júlí 2020 19:20
Forstjóri Icelandair segir ekki lengra komist með flugfreyjum Deila Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands er kominn í enn harðari hnút eftir að flugfreyjur felldu nýgerðan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. 8. júlí 2020 20:00