Íslenski boltinn

Góðir gestir ræða endurræsingu deildarinnar og margt fleira í Stúkunni í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Það er aldrei að vita nema að gula spjaldið fari á loft í þætti kvöldsins.
Það er aldrei að vita nema að gula spjaldið fari á loft í þætti kvöldsins. STÖÐ 2 SPORT

Nú er ljóst að loka á Íslandsmótinu í fótbolta innan vallar og farið verður yfir lokakaflann sem framundan er í Pepsi Max Stúkunni á Stöð 2 Sport í kvöld.

Gummi Ben verður með þá Hjörvar Hafliðason og Þorkel Mána Pétursson í settinu hjá sér þar sem farið verður yfir ýmislegt sem tengist Pepsi Max-deildinni á kjarngóðri íslensku.

Þeir munu meðal annars ræða um endurræsingu deildarinnar, kapphlaupið um að verða útnefndur besti leikmaður ársins, hverjir eru bestu ungu leikmennirnir og hvaða leikmenn eru að verða samningslausir.

Pepsi Max Stúkan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst útsendingin kl. 21.15, eða rétt eftir að leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×