Elísa: Gríðarlega þakklátar fyrir að hafa fengið leyfi til að æfa og spila fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2020 12:15 Elísa Viðarsdóttir tekur innkast í leik með Valsliðinu í sumar. Vísir/Hulda Margrét
Eina íslenska félagsliðið sem er að spila leiki þessa dagana er kvennalið Vals í fótbolta sem mætir í dag Glasgow City í forkeppni Meistaradeildarinnar og í boði er sæti í 32 liða úrslitum. Valskonan Elísa Viðarsdóttir kom í fjarviðtal til Ragnars Vignir þar sem hann spurði hana út í hvernig það hljómaði að vera að fara spila fótboltaleik 18. nóvember og það þegar allt annað íþróttalíf á landinu er stopp. „Þetta hljómar mjög ánægjulega. Við erum fyrst og fremst gríðarlega þakklátar að hafa fengið þetta leyfi til þess að æfa og spila fótbolta á þessum tímum. Þetta er gott fyrir okkur og vonandi eflir þetta kvennaboltann líka í leiðinni,“ sagði Elísa Viðarsdóttir í viðtalinu við Ragnar. „Við erum búnar að vera mjög faglegar hingað til. Þetta er búið að vera mjög langt tímabil og ég held að það sé akkúrat ár í dag síðan við vorum að spila í Bose mótinu. Þetta er búið að vera ansi langt og eðlilega er komin ákveðin þreyta í mannskapinn og svona. Við erum vel þjálfaðar í því að kippa hverri annarri niður á jörðina og benda á dagatalið og sýna að það sé stutt í jólin. Við látum það ekkert á okkur fá þótt að þetta sé búið að vera langt og strembið,“ sagði Elísa. „Það sem er sérstaklega skrýtið er að vera eina liðið á Íslandi sem er að spila og æfa. Það er það sem er eiginlega skrýtið við þetta auk þess að vera komin svona langt inn í árið og veturinn. Þetta er góð reynsla samt sem áður,“ sagði Elísa. „Þetta eru mikil forréttindi og við viljum komast sem lengst í þessari keppni, fyrir okkur, fyrir Val og fyrir kvennabolta á Íslandi almennt. Við viljum bæta okkur og þessi keppni er svolítið frábrugðin þessu hefðbundna Íslandsmóti. Það er ótrúlega skemmtilegt að fá að vera í þessari stöðu,“ sagði Elísa. Valsliðið vann 3-0 sigur á finnsku meisturunum í HJK í fyrstu umferðinni þar sem liðið leit vel út og gerði út um leikinn með þremur mörkum í fyrri hálfleiknum. „Við vorum lítið búnar að æfa sem lið fyrir þann leik en erum búnar að fá góðan tíma núna til að æfa og undirbúa liðið vel. Við erum gríðarlega spenntar,“ sagði Elísa. Valur mótir skosku meisturunum í dag en Glasgow City hefur unnið skoska titilinn þrettán ár í röð. Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport og hefst útsendingi klukkan 13.45. Það má annars hlusta á allt viðtalið við Elísu Viðarsdóttur hér fyrir neðan. watch on YouTube
Pepsi Max-deild kvenna Meistaradeild Evrópu Valur Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum „Við þurfum að þekkja okkar vitjunartíma og taka færin“ Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora „Við erum ekki að fara rúlla yfir eitt eða neitt mót“ Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Víkingar fengu góða sumargjöf Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Sjá meira