Unglingar falsa stafræn ökuskírteini til að komast inn á staði Snorri Másson skrifar 19. júní 2021 09:01 Það er gömul saga og ný að fólk sem ekki hefur náð aldri villir á sér heimildir til að komast inn á skemmtistaði. Á tækniöld verður það þó sífellt flóknara. Vísir Næturlífið er að ná vopnum sínum og ný kynslóð er að fóta sig eftir langan vetur. Hún þarf að laga sig að nýrri tækni: Borið hefur á því að ungmenni fái myndvinnslumenn til þess að lappa upp á stafræn ökuskírteini sín til þess að færa aldurinn nær löglegum viðmiðum.
Dyraverðir verða oft einskis varir og sautján ára geta þess vegna valsað um sem tuttugu og eins árs. Umsjónarmaður skírteinanna hjá fjármálaráðuneytinu segir að dyraverðir þurfi að hafa augun opin. Stafrænu ökuskírteinin voru kynnt til leiks síðasta sumar og gerðu fólki kleift að skilja hið veraldlega alfarið eftir heima. Í kjölfarið hefði mátt ætla að breytinga yrði strax að vænta í erfiðu umhverfi þeirra sem finna þurfa upp á sífellt nýjum leiðum til að komast inn á skemmtistaði, en þar sem samkomutakmarkanir tóku strax öll völd um veturinn varð þessara breytinga ekki vart strax. Nú þegar skemmtistaðirnir eru að verða sífellt lengur opnir á kvöldin hefur hinn frjálsi markaður svipt hulunni af þeirri nýju lausn að Photoshop-a ökuskírteinin með því að breyta kennitölum þeirra og fæðingarári. Þar sem er vilji er vegur Andri Heiðar Kristinsson, stafrænn leiðtogi í fjármálaráðuneytinu, segir falsanirnar gerðar með skjáskotum af skírteinunum, en ekki með því að eiga við skírteinin sjálf. „Auðvitað er hægt að sýna bara skjáskot örsnöggt eftir að maður sé búinn að breyta því í Photoshop. En þeir sem ætla að vanda sig við að skoða ökuskírteinin þurfa þá að ýta á takkana og refresha og svona,“ segir Andri. Andri Heiðar Kristinsson stafrænn leiðtogi.Stjórnarráðið Kerfið sem hýsir sjálft skírteinið sé öruggt og ekki sé hægt að komast inn í það til að eiga við upplýsingarnar. Andri segir þessa nýju fölsun sama eðlis og þegar skírteinin voru úr plasti. Ef viljinn er fyrir hendi og móttakandinn er ekki að standa sig í að kanna skírteinin vel, þá er alltaf möguleiki á að smjúga í gegn. Hætta er á að sífellt verði erfiðara fyrir fólk sem ekki hefur náð aldri að láta virðast sem svo við inngang skemmtistaða. Andri segir nýja tækni væntanlega sem muni gera rafrænu ökuskírteinin líkari greiðslukortum í símum, þar sem snertiflötur myndast við skynjara á móti símanum.
Veitingastaðir Reykjavík Næturlíf Tengdar fréttir Stafræna ökuskírteinið uppfærist daglega Nú er hægt að sækja stafrænt ökuskírteini í snjallsímann. Skírteinið gildir aðeins á Íslandi og segir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þetta framfaraskref þrýsta á önnur ríki að fara sömu leið. 1. júlí 2020 21:00 Tólf þúsund hafa sótt sér stafræn ökuskírteini Tólf þúsund einstaklingar hafa sótt sér stafrænt ökuskírteini frá því að opnað var fyrir umsóknir í dag. 1. júlí 2020 16:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Sjá meira
Stafræna ökuskírteinið uppfærist daglega Nú er hægt að sækja stafrænt ökuskírteini í snjallsímann. Skírteinið gildir aðeins á Íslandi og segir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þetta framfaraskref þrýsta á önnur ríki að fara sömu leið. 1. júlí 2020 21:00
Tólf þúsund hafa sótt sér stafræn ökuskírteini Tólf þúsund einstaklingar hafa sótt sér stafrænt ökuskírteini frá því að opnað var fyrir umsóknir í dag. 1. júlí 2020 16:06