Rúnar Kristinsson: Við viljum vinna bikar á hverju einasta ári Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. september 2021 16:54 Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var sáttur með 2-0 sigur sinna manna í lokaumferð Pepsi Max deildar karla í dag. Vísir/Hulda Margrét KR-ingar unnu 0-2 sigur á Stjörnunni í Garðabæ í lokaleik þeirra í Pepsi-Max deild karla. Með sigrinum og öðrum úrslitum í dag náðu KR-ingar 3.sætinu í deildinni og eiga því veika von á því að komast í Evrópukeppni á næsta ári. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var ánægður í leikslok. „
Mér líður mjög vel. Líður vel að hafa unnið sigur hér á Stjörnuvellinum. Það hefur gengið illa hérna undanfarið. Frábært að vinna og bónus a lenda í þriðja sæti en við erum gríðarlega ánægðir með það og ánægðir með að halda hreinu. Þetta gefur okkur smá drauma að eiga möguleika á Evrópusæti,“ sagði Rúnar í leikslok. Staðan var markalaus í leikhléi en KR-ingar komu grimmir út í síðari hálfleik og skoruðu þar tvö mörk. „Ég var ánægður með liðið að mestu leyti. Aðeins í fyrri hálfleik fannst mér við eiga full margar daprar sendingar og missa boltann illa. Hleypum þeim í skyndisóknir sem þeir eru góðir í en við náum svosem að verjast því ágætlega. Gerum svo tvö góð mörk í síðari hálfleik. Fyrra markið smá klafs en við erum að koma boltanum inn í teiginn, vinnum seinni bolta og Óskar klárar vel. Svo seinna markið okkar þá bara gerum við út um leikinn. Svo sáum við bara til þess að leikurinn myndi deyja út smátt og smátt,“ sagði Rúnar og bætti við „við vorum að fylgjast með stöðunni fyrir norðan allan tímann og vissum það snemma í fyrri hálfleik hver staðan væri. Það er erfitt að gera breytingar meðan leikurinn var í gangi í fyrri hálfleik. Það var fínt að geta tilkynnt strákunum stöðuna í hinum leikjunum inni í hálfleik og fá menn til að trúa að möguleikinn er til staðar.“ KR enda sem fyrr segir í 3.sæti deildarinnar eftir að ekki leit út fyrir lengi vel að þeir yrðu svo ofarlega. Rúnar segir markmið KR alltaf vera Íslandsmeistaratitill. „Nei við erum aldrei ánægðir ef við förum snemma út úr bikar og erum ekki í baráttu í síðustu umferð um að vinna titilinn. Við erum búnir að vera í fullmiklum eltingaleik í sumar og við setjum markið alltaf hátt. Við viljum vinna bikar á hverju einasta ári. Það gengur ekki alltaf upp en markmiðin eru alltaf þau sömu. Við fáum á okkur fæst mörk, 19 að ég held, og vanalega vinnurðu Íslandsmótið ef þú færð á þig undir 20 mörk en við erum ekki búnir að skora nægilega mikið og höfum verið að missa leiki niður í jafntefli, sérstaklega í upphafi móts. Stutt á milli í þessu. Heilt yfir getum við verið ánægðir og tala nú ekki um ef við skyldum grísast í Evrópusæti,“ sagði Rúnar. Tímabilinu og er lokið og þá spyrja margir hvort allir verði áfram í Vesturbænum. Rúnar sagði það allt vera í vinnslu. „Ég er með samning áfram og fer ekki neitt nema þeir reki mig. Það eru einhverjir lausir endar. Einhverjir leikmenn sem eru að renna út á samningi en við erum búnir að vera í sambandi við flest alla þá. Það er búið að gefa mönnum aðeins undir fótinn og þeir vita að hverju þeir geta gengið hjá okkur og svo er bara spurning hvort þeir séu tilbúnir að taka þátt í því verkefni. Ég veit ekki um neinn sem er að fara en það gæti breyst á morgun,“ sagði Rúnar að lokum.
Fótbolti Pepsi Max-deild karla KR Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Enski boltinn Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn Fleiri fréttir „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum FH-ingar kynna besta lið sögunnar Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir „Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“ „Held að Katla mín fyrirgefi mér þetta alveg“ Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur 2-1 | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Skúrkurinn endaði sem hetjan FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Sjá meira