Bugaðir foreldra tilkynna sig til barnaverndar Elísabet Inga Sigurðardóttir og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 26. mars 2023 19:01 Anna Sigríður Pálsdóttir er yfirlæknir Geðheilsumiðstöðvarinnar. egill aðalsteinsson Biðlistar eftir greiningum hafa nærri tvöfaldast á einu ári og segir yfirlæknir dæmi um að foreldrar tilkynni sig sjálfir til barnaverndar til að reyna að fá aðstoð.
Í fréttum okkar í gær sögðum við frá sjö ára dreng sem þarf að bíða í þrjú ár eftir að komast að í einhverfugreiningu. Biðin veldur móður hans áhyggjum þar sem greiningin myndi tryggja honum betri þjónustu. Samkvæmt nýjum tölum frá Geðheilsusmiðstöð barna hefur börnum sem bíða eftir einhverfu eða ADHD greiningu fjölgað hratt síðustu árin. Þau voru 669 í byrjun apríl árið 2021, árið síðar voru þau 759 en núna nærri tvöfalt fleiri eða 1381. Þá hafa það sem af er ári borist 300 nýjar tilvísanir sem þykir mikið. Geðheilsumiðstöðin sinnir greiningum barna á aldrinum sex til átján ára. Anna Sigríður Pálsdóttir yfirlæknir Geðheilsumiðstöðvarinnar segir erfitt að segja til um hvað skýri þessa aukningu en ein af skýringunum sé mögulega Covid. „Sum börn sem hefðu kannski ekki þurft þjónustu ef þau hefðu bara búið við reglu og rútínu eru komin í þörf fyrir miklu meira en fyrir Covid. Það er einn þáttur.“ Þurfa þjónustu sem fyrst Hún segir skipta máli að börnin fái þjónustu sem fyrst. „Börn þroskast mikið á stuttum tíma og það er alltaf talað um snemmtæka íhlutun og helst að byrja sem fyrst og ef að barnið er ekki að fá þjónustu sem fyrst þá er það bara að missa af vissum skrefum.“ Hún segir verið að þjálfa upp fleira fólk til að sinna greiningum en meira fjármagn þurfi svo hægt sé að vinna hraðar á biðlistunum. Hún segir nýleg lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna eiga að tryggja börnum þjónustu í skólum þó greining sé ekki komin. „Ef það er grunur um einhverfu eða einhverfulík einkenni þá á alltaf að búa til prógramm eins og um einhverfu væri að ræða.“ Foreldrar tilkynni sig til barnaverndar Þá eigi foreldrar rétt á að fá málstjóra eftir frumgreiningu samkvæmt lögunum en hann geti hjálpað þeim með að fá viðeigandi aðstoð. Hún segir marga foreldra bugaða og eiga erfitt með að bíða lengi eftir greiningu. „Ég dáist að fólki fyrir að standa í þessari baráttu en það geta allir leitað til Félagsþjónustunnar og fengið ráðgjafa þar og sumir hringja jafnvel í barnavernd og tilkynna sjálft sig af því það ræður ekki við stöðuna.“ Þá þurfi að skoða líka skólakerfið en sum börn passi hreinlega ekki inn í það eins og það er núna. „Svona aðstæður eins og til dæmis stórir bekkir. Maður sér aukinn fjölda af börnum úr því umhverfi sem er að koma inn.“
Heilbrigðismál Börn og uppeldi Barnavernd Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjá meira