Innlent

Hefði viljað ganga lengra í dag

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefði viljað ganga lengra í tilslökunum á sóttvarnatakmörkunum innanlands. Hún hefði meðal annars vilja afnema grímuskyldu.

„Við fögnum þeim að sjálfsögðu en á sama tíma hefði ég vilja sjá umfangsmeiri afléttingu; enga grímuskyldu og svona fastar kveðið á um eðlilegra líf. En þetta er mikilvægt skref, sérstaklega fyrir börn og ungmenni í skóla og fleiri,“ sagði Áslaug Arna eftir ríkisstjórnarfund í dag þar sem tilsklakanir á sóttvarnaaðgerðum voru kynntar.

„En á sama tíma þá sé ég enga sérstaka ástæðu fyrir því að aðstæður hér séu með allt öðrum hætti en í löndunum í kring um okkur. Þá er ég ekki að gera lítið úr skaðsemi veirunnar heldur bara að koma sér í eðlilegt líf og frjálst líf sem felur ekki í sér íþyngjandi takmarkanir,“ sagði Áslaug.

Nýjar reglur taka gildi á miðnætti en þá fara almennar fjöldatakmarkanir úr 200 í 500 manns og hámarksfjöldi á hraðprófsviðburðum fer úr 500 í 1.500. Grímuskylda á slíkum viðburðum verður einnig afnumin en aðeins ef gestir hans eru sitjandi. Skemmtistaðir mega einnig hafa opið lengur; hleypa gestum inn til miðnættis en verða að hafa tæmt staðina klukkan eitt.

Þannig þú hefðir viljað ganga enn lengra í dag?

„Já, ég held að við séum bara komin á þann stað að fólki sé orðið treystandi til að bera ábyrgð á sínum eigin sóttvörnum þegar staðan er orðin svona góð eins og raun ber vitni,“ segir Áslaug.

„Bólusetningar veita mikla vernd, sem og að staðan á spítalanum er góð og búið að styrkja hann.“

Er ekki hlustað nógu mikið á þig og þessi sjónarmið í ríkisstjórninni?

„Við höfum alltaf rætt þau hiklaust inni á fundum og munum vonandi gera það bara áfram næstu daga. Þetta er auðvitað mikilvægt skref sem er verið að stíga núna.“

Samt alltaf eining í ríkisstjórninni

Þrátt fyrir þessi orð Áslaugar fullyrti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra eftir fundinn í dag að eining hefði ríkt um næstu aðgerðir í ríkisstjórninni eins og alltaf. 

Var samhljómur um þetta innan ríkisstjórnarinnar? var hún spurð og svarið var einfalt: „Algjör.“

„Við ræðum málin alltaf, komum alltaf samhljóma hérna út.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×