Svandís útilokar ekki breytingu á lögum Snorri Másson og Heimir Már Pétursson skrifa 8. apríl 2021 16:54 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra útilokar ekki lagabreytingu vegna sóttvarnaaðgerða við landamærin. Vísir/Vilhelm Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur kynnt nýja reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum sem tekur gildi á miðnætti. Nú er ekki skylda að fara á sóttkvíarhótel ef maður getur uppfyllt nauðsynleg skilyrði heimasóttkvíar, svo sem um að enginn annar sé til dvalar í sama húsnæði.
Ráðherra segir í viðtali við fréttastofu að hún hafi verið fullvissuð um það af sínu fólki í ráðuneytinu að nýja reglugerðin standist gildandi lög. „Þetta er í raun og veru orðið skýrara, ef svo má að orði komast. Svo höfum við líka tekið ákvörðun um að falla frá gjaldtöku og tryggja útiveru,“ segir Svandís. Reglugerðin byggir á tillögum sóttvarnalæknis. „Í raun og veru hef ég algerlega tekið undir allar tillögur sóttvarnalæknis og gert þær að mínum með því að setja þær inn í nýja reglugerð,“ segir Svandís. „Það eru reyndar tvær tillögur sem eru ekki beinlínis á mínu valdsviði en ég uppfylli þær með því að skrifa bréf. Það er annars vegar að hækka sektir umtalsvert sem er á borði ríkissaksóknara og hins vegar er tillaga um það að herða eftirlit og hafa það markvissara og það er þá ríkislögreglustjóri sem fær það erindi til sín,“ heldur ráðherra áfram. Önnur breyting á reglugerðinni er sú að gerist einstaklingur uppvís að því að brjóta heimasóttkví, getur sóttvarnalæknir ákveðið að hann skuli ljúka sóttkví í sóttvarnahúsi. Útilokar ekki lagabreytingu Rætt hefur verið um að breyta þurfi lögum til að gera löglegt það sem reyndist ólögmætt fyrirkomulag fyrir dómstólum, um skyldudvöl á sóttkvíarhóteli. Svandís segir að ný reglugerð útiloki ekki að lagabreytingar komi til. „Ég held að það sé ekki útilokað að enn sé þörf á að breyta lögum. Við þurfum að velta því fyrir okkur áfram næstu daga.“ Reglugerðin tekur gildi á miðnætti í kvöld. „Við ættum að sjá áhrif þessara breytinga fljótt og vel,“ segir heilbrigðisráðherra. Svandís sagði í gær í kvöldfréttum Stöðvar 2 að markmiðið væri að ná utan um smit í samfélaginu og að þau kæmust ekki inn í landið. Hún sagði þá að ef niðurstaða Landsréttar væri sú sama og héraðsdóms, sem hún var, þá yrði að huga að því hvernig mætti ná þessum sömu markmiðum með öðrum hætti.
Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Nýjar reglur á landamærum taka gildi á miðnætti Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús. Ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina og fólki tryggð útivera. Ekki er gerður greinarmunur á því frá hvaða löndum fólk kemur. 8. apríl 2021 16:36 Væri ágætis byrjun að biðja fólkið afsökunar á þessu klúðri Bjarni Már Magnússon, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að „grafa undan íslenskum dómstólum“ með viðbrögðum sínum við úrskurði Héraðsdómur Reykjavíkur um að skyldudvöl á sóttkvíarhóteli væri ólögmæt ráðstöfun. 8. apríl 2021 16:07 Þurfum að ná sömu markmiðum með öðrum hætti ef niðurstaðan verður staðfest Heilbrigðisráðherra segir niðurstöðu héraðsdóms um sóttkvíarhótel vera vonbrigði en næstu skref verða ákveðin eftir úrskurð Landsréttar. Þingmaður Pírata í velferðarnefnd segir málið risa stórt klúður og ætlar ekki að samþykkja lagabreytingar sem gætu skotið stoðum undir fyrirkomulagið. 6. apríl 2021 18:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira
Nýjar reglur á landamærum taka gildi á miðnætti Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús. Ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina og fólki tryggð útivera. Ekki er gerður greinarmunur á því frá hvaða löndum fólk kemur. 8. apríl 2021 16:36
Væri ágætis byrjun að biðja fólkið afsökunar á þessu klúðri Bjarni Már Magnússon, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að „grafa undan íslenskum dómstólum“ með viðbrögðum sínum við úrskurði Héraðsdómur Reykjavíkur um að skyldudvöl á sóttkvíarhóteli væri ólögmæt ráðstöfun. 8. apríl 2021 16:07
Þurfum að ná sömu markmiðum með öðrum hætti ef niðurstaðan verður staðfest Heilbrigðisráðherra segir niðurstöðu héraðsdóms um sóttkvíarhótel vera vonbrigði en næstu skref verða ákveðin eftir úrskurð Landsréttar. Þingmaður Pírata í velferðarnefnd segir málið risa stórt klúður og ætlar ekki að samþykkja lagabreytingar sem gætu skotið stoðum undir fyrirkomulagið. 6. apríl 2021 18:36