fbpx
Föstudagur 10.maí 2024
433Sport

Hákon Rafn heldur til Svíþjóðar

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 9. apríl 2021 13:08

Hákon Rafn Valdimarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hákon Rafn Valdimarsson markvörður Gróttu í Lengjudeildini er að ganga í raðir Elfsborg í Svíþjóð. Frá þessu greindi Kristján Óli Sigurðsson í hlaðvarpsþættinum, Dr. Football í dag.

Hákon sem er 19 ára gamall átti ágætis spretti með Gróttu í efstu deild síðasta sumar en fjöldi félaga hefur skoðað hann.

Elfsborg varð í öðru sæti í úrvalsdeildinni í Svíþjóð á síðasta ári en félagið hefur sex sinnum orðið meistari þar í landi.

Hákon var þriðji markvörður U21 árs landsliðsins á Evrópumótinu í Ungverjalandi á dögunum.

Búist er við því að Hákon skrifi undir hjá Elfsborg á næstu dögum en viðræður eru á lokastigi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Kölluðu goðsögnina ‘tíkarson’ fyrir stórleikinn í gær – Tengdist leiknum ekki neitt

Kölluðu goðsögnina ‘tíkarson’ fyrir stórleikinn í gær – Tengdist leiknum ekki neitt
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Manchester United of seint að blanda sér í baráttuna

Manchester United of seint að blanda sér í baráttuna
433Sport
Í gær

Ryan Reynolds og félagar vilja semja við markvörð Arsenal

Ryan Reynolds og félagar vilja semja við markvörð Arsenal
433Sport
Í gær

Eru dagar Onana hjá United þegar taldir? – Spænskur markvörður sagður á blaði

Eru dagar Onana hjá United þegar taldir? – Spænskur markvörður sagður á blaði