Ótrúlegri sigurgöngu Frakkans lokið

Bayern München.
Bayern München. AFP

Franski knattspyrnumaðurinn Kingsley Coman var á ferlinum ekki búinn að spila eitt einasta tímabil án þess að verða deildarmeistari í því landi sem hann lék. Breyting varð á því um liðna helgi.

Coman leikur með Bayern München en Bayer Leverkusen batt enda á 11 ára samfleytta sigurgöngu í gær.

Hann er 27 ára og hefur á ferlinum leikið með París SG í Frakklandi, Juventus á Ítalíu og Bayern München frá árinu 2015.

Coman varð franskur meistari með PSG árin 2013 og 2014, ítalskur meistari með Juventus árið 2015 og svo þýskur meistari með Bayern frá 2016 til 2023. Alls varð hann því deildarmeistari 11 ár í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert