Afnám harðra sóttvarnaaðgerða gæti dregist á langinn Heimir Már Pétursson skrifar 6. apríl 2021 19:20 Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að skjóta lagalegum stoðum undir að skylda alla til að dvelja á sóttvarnahóteli á milli skimana eftir komuna til landsins. Vísir/Egill Sóttvarnalæknir segir að harðar sóttvarnaaðgerðir innanlands gætu varað lengur ef ekki verði hægt að skylda alla til að dvelja á sóttvarnahóteli milli tveggja skimana eftir komuna til landsins.
Það er augljóst að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er ekki sáttur við þá stöðu sem upp er komin eftir að héraðsdómur dæmdi það ólöglegt að skylda fólk í sóttkví á sóttkvíarhótelum. Það takmarkaði mjög nauðsynlegar sóttvarnaaðgerðir og sem nauðsynlegt væri að skjóta lagalegum stoðum undir. Reglugerð sem heilbrigðisráðherra setti um sóttkvíarhótel var felld úr gildi af héraðsdómi í gær. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að skjóta lagastoðum undir heimild til þessa.Vísir/Vilhelm „Já, ef við ætlum að tryggja sýkinga- og sóttvarnir. Eins og ég hef margoft sagt áður er helsta hættan okkar núna að fá smit í gegnum landamærin,“ segir sóttvarnalæknir. Að skylda alla óbólusetta ferðamenn sem heldur hafi ekki fengið sjúkdóminn í sóttkví á hótelum hafi verið til að girða fyrir þekkta veikleika. „Ef okkur tekst það ekki held ég að við munum fá meira smit innanlands. Þá þurfum við væntanlega að búa við meiri takmarkanir innanlands ef við ætlum að halda þessum faraldri í skefjum þar til við náum meiri útbreiðslu bólusetninga,“ segir Þórólfur. Þannig gæti aflétting þeirra ströngu samkomutakmarkana sem nú væru í gildi gengið hægar fyrir sig. Á miðnætti tók reglugerð dómsmálaráðherra síðan gildi sem heimilar fólki utan Schengen og evrópska efnahagssvæðisins sem hefur annað hvort jafnað sig á covid eða fengið bólusetningu að koma til landsins eftir eina skimun og komu fyrstu farþegarnir frá Bandaríkjunum í morgun. Bandaríkin hafa hins vegar ekki enn opnað fyrir ferðamenn inn til sín. Þórólfi segir að 70 til 80 prósent þeirra sem greinist á landamærunum mæti með PCR vottorð reynist eingu að síður smitaðir. „Auðvitað er það áhyggjuefni að það eru svona margir að greinast í seinni skimun núna. Helmingurinn. Sem segir okkur að það þarf ennþá frekar að tryggja að fólk fari eftir öllum leiðbeiningum í sinni sóttkví,“ segir Þórólfur. Það sé erfitt að hafa eftirlit með því nema allir taki sóttkvína út á sóttkvíarhótelum. Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra telur farsælast að fara að ráðleggingum sérfræðinga nú eins og hingað til varðandi sóttvarnareglur.Vísir/Vilhelm Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra segir þann árangur sem hér hafi náðst ekki vera tilviljun. Hann hafi náðst með samstilltu átaki margra. „Þetta hefur tekist af því að við höfum gert það sem þarf að gera þegar þarf að gera það. Og það hefur verið talað um að við njótum þeirrar gæfu á Íslandi að hlustað hafi verið á ráð sérfræðinganna og þeim verið fylgt. Það er vænlegast til áframhaldandi árangurs að svo verði áfram,“ segir Rögnvaldur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Keflavíkurflugvöllur Bólusetningar Tengdar fréttir Tugir þúsunda bóluefnaskammta væntanlegir Von er á tæplega 65.300 bóluefnaskömmtum frá fjórum framleiðendum til landsins í þessum mánuði. Mánaðarleg afhending á bóluefni eykst um 160% í þessum mánuði borið saman við fyrstu þrjá mánuði ársins. 6. apríl 2021 17:25 Brynjar segist aldrei muni taka þátt í að breyta sóttvarnarlögum við þessar aðstæður Talið er víst að margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni setja sig alfarið á móti því að breyta sóttvarnarlögum í þá átt að löglegt sé að skikka fólk í sóttvarnarhús, komi til þess. 6. apríl 2021 14:18 Segir ríkisstjórnina glannalega Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms um sóttkvíarhótel til Landsréttar og skorar á stjórnvöld að breyta lögum þannig að heimilt verði að skylda farþega þar í sóttkví. Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um næstu skref. 6. apríl 2021 12:11 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Fleiri fréttir „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Sjá meira
Tugir þúsunda bóluefnaskammta væntanlegir Von er á tæplega 65.300 bóluefnaskömmtum frá fjórum framleiðendum til landsins í þessum mánuði. Mánaðarleg afhending á bóluefni eykst um 160% í þessum mánuði borið saman við fyrstu þrjá mánuði ársins. 6. apríl 2021 17:25
Brynjar segist aldrei muni taka þátt í að breyta sóttvarnarlögum við þessar aðstæður Talið er víst að margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni setja sig alfarið á móti því að breyta sóttvarnarlögum í þá átt að löglegt sé að skikka fólk í sóttvarnarhús, komi til þess. 6. apríl 2021 14:18
Segir ríkisstjórnina glannalega Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms um sóttkvíarhótel til Landsréttar og skorar á stjórnvöld að breyta lögum þannig að heimilt verði að skylda farþega þar í sóttkví. Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um næstu skref. 6. apríl 2021 12:11