Nýliðarnir byrjuðu frábærlega og Blikakonur unnu meistaraefnin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2020 16:00 Keira Breeanne Robinson hitti ekki úr skoti utan af velli en leiddi samt Skallagrímsliðið til sigurs á Ásvöllum í gær með því að komast sjö sinnum á vítalínuna og taka 13 fráköst. Vísir/Vilhelm
Fyrsta umferð Domino´s deild kvenna fór fram í gærkvöldi og fögnuðu Keflavík, Skallagrímur, Breiðablik og nýliðar Fjölnis sigri í fyrsta leik. Keflavík og Fjölnir unnu stórsigra en það var mikil spenna í hinum tveimur leikjunum. Guðjón Guðmundsson fór yfir alla leiki gærkvöldsins í samantekt fyrir Vísi og tók saman myndbrot úr leikjunum fjórum. Nýliðar Fjölnis voru í tómu tjóni framan af leik á móti Snæfell og lentu mest nítján stigum undir í öðrum leikhlutanum en eftir að liðið fór í gang þá réðu fáliðaðir gestir úr Stykkishólmi ekki við eitt eða neitt. Fjölnir vann síðustu 26 mínútur leiksins 74-24 og þar með leikinn með 31 stigi, 91-60. Írinn Fiona Eilish O'Dwyer var með 20 stig, 16 fráköst og 5 stoðsendingar og Litháinn Lina Pikciuté bætti við 17 stigum og 12 fráköstum en það má ekki gleyma frammistöðu hinnar sextán ára gömlu Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir sem skoraði 18 stig á 23 mínútum í sínum fyrsta leik í Domino´s deildinni. Breiðablik er með allt annað og miklu betra lið en í fyrra og Blikakonur sönnuðu það strax í fyrsta leik á móti deildarmeisturum Vals. Hin bandaríska Jessica Kay Loera er greinilega öflugur leikmaður og var með 25 stig og 6 stoðsendingar í fyrsta leik og þá skoraði Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 13 stig og Isabella Ósk Sigurðardóttir var með 12 stig, 18 fráköst og 3 varin skot. Hildur Björg Kjartansdóttir var með 16 stig og 13 fráköst hjá Val en Valskonur voru kanalausar í þessum leik alveg eins og í tapinu á móti Skallagrími í Meistarakeppninni. Bikarmeistarar Skallagríms sluppu með öll stigin af Ásvöllum eftir æsispennandi leik á móti Haukum. Skallagrímsliðinu tókst að vinna leikin þrátt fyrir að hin bandaríska Keira Breeanne Robinson hafi klikkað á öllum sjö skotum sínum utan af velli. Robinson setti hins vegar niður átta víti, tók 13 fráköst og fiskaði yfir tíu villur á Haukana. Sanja Orozovic skoraði 21 stig fyrir Skallagrím og Nikita Telesford var með 15 stig og 13 fráköst. Alyesha Lovett var með 21 stig og 15 fráköst í sínum fyrsta leik með liðinu og Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 14 stig. Ungu stelpurnar í Keflavíkur áttu ekki í miklum vandræðum með KR og það þrátt fyrir að nýi Finninn í liði KR, Annika Holopainen, hafi skorað 43 stig í leiknum. Daniela Wallen Morillo vantaði bara eina stoðsendingu í þrennuna en hún var með 37 stig, 11 fráköst, 9 stoðsendingar og 7 stolna bolta. Anna Ingunn Svansdóttir skoraði 17 stig og yngri systir hennar Agnes María Svansdóttir var með 12 stig á 17 mínútum í fyrsta alvöru tækifæri sínu í efstu deild. Hér fyrir neðan má sjá Guðjón Guðmundsson fara yfir leiki gærdagsins. Klippa: Gaupi og fyrsta umferð Domino´s deildar kvenna í körfubolta
Dominos-deild kvenna Fjölnir Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Oddaleikur í opinni dagskrá: Grindvíkingar taka á móti Keflvíkingum Sjá meira
Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik