Lionel Messi getur ekki leikið með París SG í kvöld þegar liðið mætir Metz í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Messi var tekinn af velli á sunnudaginn þegar PSG vann Lyon og knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino upplýsti að það hefði verið vegna meiðsla en Messi virtist á þeirri stundu ósáttur við að vera skipt út af.
Messi fór í myndatöku í gær og í ljós komu áverkar á hné. Hann spilar ekki í kvöld og fer í nánari rannsókn á morgun.
PSG á framundan sannkallaðan stórleik gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu næsta þrðjudag en liðið hefur unnið sex fyrstu leiki sína í 1. deildinni. Messi hefur aðeins tekið þátt í tveimur þeirra en hann kom til félagsins frá Barcelona í ágústmánuði.