Algengt að börn séu hrædd og kvíðin fyrir sýnatökur og bólusetningar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 12. janúar 2022 20:01 Nína Björg Arnarsdóttir sálfræðingur hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni. Mikilvægt er að undirbúa börn vel fyrir sýnatökur og bólusetningar því algengt eru að þau verið hrædd og kvíði því að þurfa jafnvel að fara aftur, að sögn barnasálfræðings. Þá geti sóttkví sömuleiðis haft andleg áhrif á börnin. „
Við höfum verið að heyra það frá foreldrum og börnum að sýnatökurnar séu kannski gerðar á svolítið ógnvekjandi hátt. Börnin eru stundum hrædd við að þeim verði haldið niðri í sýnatökunni, að sjá önnur börn grátandi, og það ýtir undir kvíða hjá þeim. Við þurfum svolítið að passa upp á viðbrögðin okkar og hvernig við tökumst á við sýnatökur hjá börnum, og foreldrar að undirbúa börnin fyrir sýnatökuna. Það er mjög mikilvægt að þau viti hvað er að gerast,” segir Nína Björg Arnarsdóttir sálfræðingur hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni. Hún segir að margt í faraldrinum hafi reynst börnunum erfitt; sóttkví, einangrun, sýnatökur og allt sem honum fylgir. „Við erum svolítið að taka börn úr þeirra daglega lífi og rútínu, sem getur valdið því að þau upplifa einmanaleika, depurð og kvíða fyrir því í hversu langan tíma þetta verður. Kvíða yfir að smita aðra í kringum sig og fleira, þannig að þetta hefur veruleg áhrif á líðan þeirra,” segir Nína. Þetta sé sömuleiðis álag á foreldra. „Við vitum það sjálf að þegar við erum kannski mikið í einangrun eða sóttkví og við náum ekki að sinna okkar áhugamálum og félagslegu tengslum að þá getum við fundið fyrir einamanaleika og depurð af þessu rútínuleysi.” Nína, ásamt tveimur öðrum barnasálfræðingum, skrifaði nýverið grein um hvernig nálgast eigi börnin í þessum óvenjulegu aðstæðum, til dæmis fyrir bólusetningar. Samtal og undirbúningur séu lykilþættir. „Það er að segja þeim hvernig ferlið verður, skref fyrir skref. Að það muni einhver taka á móti þeim, með grímu og kannski í galla. Svo kemur pinni sem er settur í nefið og útskýra þannig fyrir þeim hvert skref.” Þannig sé til dæmis sniðugt að gera þetta myndrænt. „En svo er það líka bara að taka samtalið: hverju hefurðu áhyggjur af, hvað óttastu, og fara yfir hvort óttinn sé raunhæfur eða ekki – til dæmis ef barnið heldur að pinninn fari alla leið upp í heila eða eitthvað slíkt.” Foreldrarnir þurfi líka að huga að nálguninni. „Við þurfum líka að passa okkar kvíða sem foreldrar. Til dæmis að segja ekki ítrekað „þetta verður allt í lagi”. Börn eru meðvituð um að þetta er kannski ekki eitthvað sem mamma og pabbi segja oft og í venjulegum aðstæðum eins og út í búð og svona. Það þarf að passa að yfirfæra ekki okkar kvíða yfir á börnin eins og til dæmis með að halda fast í höndina á þeim og annað slíkt.”
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Börn og uppeldi Bólusetningar Geðheilbrigði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Fleiri fréttir Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Sjá meira