Sagt upp 64 ára eftir 20 ár í starfi Snorri Másson skrifar 18. júní 2021 18:35 Einkaaðilar tóku nýlega við rekstri hjúkrunarheimilisins Hlíðar á Akureyri. Akureyrarbær Sextíu og fjögurra ára gamalli konu með 20 ára starfsreynslu var sagt upp störfum á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri á dögunum, en ætla má að uppsögnin sé liður í hagræðingaraðgerðum nýrra rekstraraðila heimilisins, sem tóku við fyrir skemmstu.
Reksturinn var einkavæddur í apríl og nýr rekstraraðili, Heilsuvernd Hjúkrunarheimili ehf., tók við. Þar með lét Akureyrarbær af rekstri heimilisins og útvistaði honum til Heilsuverndar. Starfskrafta umræddrar konu er ekki óskað meðan á sex mánaða uppsagnarfrestinum stendur, en hún fær hann allan greiddan. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar, sem undirritaði samninginn við Heilsuvernd um rekstur hjúkrunarheimilisins, sagði í viðtali við N4 í apríl að gera mætti ráð fyrir að rekstrarkostnaðurinn myndi lækka töluvert eftir því sem nýir starfsmenn yrðu ráðnir inn á nýjum samningum. Drífa Snædal forseti ASÍ segir frá uppsögninni á Facebook-síðu sinni og gagnrýnir um leið ráðstöfun Heilsuverndar. „Heilsuvernd Hjúkrunarheimili ehf. eru tekin við rekstrinum á Hlíð á Akureyri og tvínóna ekki við hlutina. 64 ára gömul kona sem hefur starfað á hjúkrunarheimilinu í 20 fékk sent þetta bréf. Svei þeim og svei arðvæðingunni! Nú á að losa sig við “dýra” starfsfólkið og ná “hagræðingu”. Starfsfólkið er fyrst til að taka skellinn, þetta líðst með vitund og vilja ríkis og sveitarfélagsins!“ Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar, sagði í viðtali við Vísi í maí að ljóst væri að nýir samningar yrðu ólíkir fyrri samningunum, en sagði meininguna ekki þá að breyta þeim eitthvað stórkostlega. Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins (SGS) og stéttarfélagsins Einingar-Iðju, sem er stéttarfélag flestra starfsmanna Öldrunarheimilanna, gagnrýndi orð bæjarstjórans á sínum tíma og þótti þau vond skilaboð inn í samningaviðræður sem ekki voru hafnar.
Hjúkrunarheimili Akureyri Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Erlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Innlent Fleiri fréttir Kannabis en ekki kjólar í kassanum Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni takast á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt Sjá meira