Akureyringar bæta við sig markverði

Akureyringar bæta við sig markverði.
Akureyringar bæta við sig markverði. Ljósmynd/Þór/KA

Bandaríski knattspyrnumarkvörðurinn Shelby Money er gengin til liðs við Þór/KA frá Gotham FC. 

Shelby er 26 ára gömul og lék með knattspyrnuliði Rowan-háskólans áður en hún gekk til liðs við Racing Louisville og loks Gotham en bæði þessi lið leika í bandarísku atvinnudeildinni, NWSL. Hún á þó ekki deildaleik að baki fyrir þau.

Þór/KA, sem hafnaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar í fyrra, vinnur nú að frágangi og umsóknum varðandi félagaskipin. Vonast félagið til að fá leikheimild fyrir Shelby fyrir fyrsta leik liðsins 21. apríl en þá mætir liðið Íslandsmeisturum Vals á útivelli í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert