Svandís og Þórólfur hitta velferðarnefnd

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mæta á fund …
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mæta á fund velferðarnefndar, sem hefst klukkan tíu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu mæta á fund velferðarnefndar í dag þar sem brugðist verður við úrskurði héraðsdóms sem dæmdi reglugerð ráðherra ólögmæta í gær.

Formaður Lögmannafélags Íslands, Berglind Svavarsdóttir, situr einnig fundinn ásamt fleiri lögmönnum, á meðal þeirra eru Reimar Pétursson og Kári Hólmar Ragnarsson en Reimar er á meðal verjenda þeirra sem létu reyna á rétt sinn fyrir dómstólum eftir að hafa verið skikkaðir í sóttvarnahús.

Fundurinn verður fjarfundur og er búist við því að hann standi yfir fram yfir hádegi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert