Lífið

Svona var kosningarsjónvarp Stöðvar 2 árin 1991 og 2006

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
SIgurveig Jónsdóttir og Sigmundur Ernir í setti í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 fyrir þrjátíu árum.
SIgurveig Jónsdóttir og Sigmundur Ernir í setti í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 fyrir þrjátíu árum. Stöð 2

Það er alltaf mikil stemning á fréttastofunni í kringum kosningar. Í tilefni þess að kosningarsjónvarp Stöðvar 2 er á dagskrá annað kvöld, viljum við rifja upp gullmola úr kistunni okkar.

Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fjallar um kosningarnar alla helgina en á laugardagskvöld klukkan 20.30 hefst kosningaútsendingin sjálf og stendur fram á nótt. 

„Það má búast við mikilli spennu,“ sagði Sigurveig Jónsdóttir í upphafi kosningavökunnar árið 1991.  „Við ætlum að búa til lifandi sjónvarp,“ bætti þá Sigmundur Ernir við. 

Hér fyrir neðan má sjá upptöku af fyrstu þremur klukkustundunum af kosningasjónvarpi Stöðvar 2 fyrir kosningarnar til Alþingis árið 1991.

Í klippunni hér fyrir neðan má sjá bak við tjöldin við gerð kosningasjónvarps Stöðvar 2 árið 2006. Kristján Már Unnarsson er þar í essinu sínu í undirbúningi ásamt góðum hópi. 


Tengdar fréttir

Aldrei fleiri kosið utan­kjör­fundar í ó­venju­legum kosningum

Aldrei hafa fleiri kosið utankjörfundar í alþingiskosningum en að þessu sinni. Í morgun höfðu 42.635 greitt atkvæði utankjörfundar á landsvísu, þar af tæplega 30 þúsund í Reykjavík. Yfirkjörstjórnir leggja nú lokahönd á undirbúning fyrir kjördag á morgun en kosningarnar í ár eru um margt óvenjulegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×