900 starfsmenn Mayo Clinic smitast á tveimur vikum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. nóvember 2020 23:29 Heilbrigðisstarfsmenn viðhafa ýtrustu sóttvarnir í vinnunni en eru berskjaldaðri fyrir Covid-19 úti í samfélaginu. epa/Giuseppe Lami
Fleiri en 900 starfsmenn Mayo Clinic, eins virtasta rannsóknarsjúkrahúss Bandaríkjanna, hafa smitast af Covid-19 á aðeins tveimur vikum. Næstum allir smituðust utan vinnu en tölurnar þykja sýna hvaða áhrif mikið samfélagssmit getur haft á starfsemi heilbrigðisstofnana. Samkvæmt yfirlækni á spítalanum smituðust 93% starfsmanna utan spítalans en allir þeir sem smituðust á vinnustaðnum eru taldir hafa smitast þegar þeir tóku af sér grímurnar til að borða. Umræddur hópur telur þriðjung þeirra starfsmanna sem hafa smitast frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst en höfðustöðvar Mayo Clinic í Rochester í Minnesota er nú þúsund starfsmönnum frá fullri mönnun. „Þetta sýnir það hversu auðvelt það er að fá Covid-19 í mið-vesturríkjunum,“ hefur Guardian eftir Amy Williams. „Starfsfólk okkar er að mestu að smitast vegna útbreiðslu í samfélaginu og það hefur áhrif á getu okkar til að annast sjúklingana okkar.“ Ekki hefur komið fram hvort smit meðal starfsmanna hafi leitt til dauðsfalla en samkvæmt rannsóknarvinnu Guardian og Kaiser Health News hafa að minnsta kosti 1.396 heilbrigðisstarfsmenn látið lífið af völdum veirunnar. Um 161 þúsund tilfelli Covid-19 greindust í Bandaríkjunum í gær og þá lágu 76.830 á sjúkrastofnunum vegna sjúkdómsins. Williams segir marga spítala í mið-vesturríkjunum yfirfulla.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bandaríkin Tengdar fréttir Áunnið ónæmi gæti varað ár eða áratugi Rannsóknarniðurstöður vísindamanna við La Jolla Institute of Immunology í Bandaríkjunum vekja vonir um að áunnið ónæmi gegn SARS-CoV-2 geti varað í mörg ár eða jafnvel áratugi. Flestir þeirra sem tóku þátt í rannsókn stofnunarinnar bjuggu enn að nógu góðu ónæmissvari átta mánuðum eftir smit til að vinna á veirunni og koma í veg fyrir veikindi. 18. nóvember 2020 19:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira
Áunnið ónæmi gæti varað ár eða áratugi Rannsóknarniðurstöður vísindamanna við La Jolla Institute of Immunology í Bandaríkjunum vekja vonir um að áunnið ónæmi gegn SARS-CoV-2 geti varað í mörg ár eða jafnvel áratugi. Flestir þeirra sem tóku þátt í rannsókn stofnunarinnar bjuggu enn að nógu góðu ónæmissvari átta mánuðum eftir smit til að vinna á veirunni og koma í veg fyrir veikindi. 18. nóvember 2020 19:29