Barnungur sonur bardagakappans lést

Francis Ngannou.
Francis Ngannou. AFP/Daniel Leal

Sonur bardagakappans Francis Ngannou er látinn einungis 15 mánaða gamall.

Ngannou, sem hefur á ferlinum orðið þungavigtarmeistari í UFC í blönduðum bardagalistum og er nú hnefaleikakappi, tilkynnti um fráfall sonar síns Kobe á samfélagsmiðlinum X í kvöld.

„Það er allt of snemmt til að fara en samt er hann farinn. Litli strákurinn minn, vinur minn, félagi minn Kobe var uppfullur af lífi og gleði.

Nú liggur hann líflaus. Ég hrópaði nafn hans aftur og aftur en hann svarar ekki. Ég var besta útgáfan af sjálfum mér við hliðina á honum en nú hef ég ekki minnstu hugmynd um hver ég er.

Lífið er svo ósanngjarnt að hæfa okkur þar sem við erum viðkvæmust,“ skrifaði Kamerúninn Ngannou, sem er 37 ára gamall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert