Strákurinn sem Ísland missti frábær í fyrsta leik með Bandaríkjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2024 10:31 Cole Campbell spilar með Borussia Dortmund og nú fyrir bandaríska landsliðið en ekki það íslenska. Getty/ Jonathan Moscrop William Cole Campbell ákvað að hætta að gefa kost á sér í íslensku landsliðin og skipta yfir í bandaríska landsliðið.
FIFA gaf grænt ljós á skiptin og Cole spilaði sinn fyrsta leik með bandarísku landsliði þegar hann hjálpaði nítján ára landsliðinu að vinna England um helgina. Hinn átján ára gamli Cole skoraði tvö mörk í 3-2 sigri en leikurinn fór fram í Rabat í Marokkó. Í fyrra markinu fékk hann stungusendingu inn fyrir vörnina og kláraði færið af mikilli yfirvegun. Í seinna markinu þá keyrði hann á bakvörðinn og fíflaði hann áður en hann afgreiddi boltann glæsilega í markið rétt utan markteigsins. Cole skoraði tvö mörk í sjö leikjum fyrir íslenska sautján ára landsliðið og er þegar búinn að jafna það í fyrsta leik með bandarísku landsliði. Cole spilaði með FH og Breiðabliki áður en hann fór út en hann spilar nú með unglingaliði Borussia Dortmund. Hann á bandarískan föður en móðir hans er fyrrum landsliðskona Íslands, Rakel Ögmundsdóttir. Rakel lék tíu A-landsleiki fyrir Ísland og skoraði í þeim sjö mörk. Hún skoraði einnig þrjú mörk í þremur leikjum fyrir 21 árs landsliðið. Cole hefur spilað með nítján ára liði Dortmund í vetur og er með sjö stoðsendingar og tvö mörk í sextán leikjum í þýsku deildinni. Hér fyrir neðan má sjá mörkin hjá Cole. View this post on Instagram A post shared by CAA Stellar Nordic (@caastellarnordic)
Bandaríski fótboltinn Þýski boltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Fótbolti „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Fleiri fréttir Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Sjá meira