Albumm

Birnir og Aron Can með lag sem er hlaðið fáfræði og stælum

Ritstjórn Albúmm.is skrifar
bbb
Vignir Daði Valtýsson

Einn virtasti rappari landsins, tónlistarmaðurinn Birnir gefur út annað lagið af komandi breiðskífu sinni. 

Að þessu sinni fékk hann til liðs með sér Aron Can. Performansinn í laginu F.C.K er hlaðinn af fáfræði og stælum.

F.C.K snýst um að gera sér grein fyrir því að allir þessir litlu hlutir sem manni geta fundist of mikilvægir, skipta í enda dags, engu F.C.K máli. Erfið samskipti, álit annarra eða þegar maður fær ekki það sem maður vill.

Vignir Daði Valtýsson

Lagið er poppað, dansvænt og sumarlegur slagari sem passar einhvernveginn fullkomlega að tíðarandanum í dag. F.C.K er pródúserað af Þormóði, sem hefur samið ein vinsælustu lög ársins með þeim félögum– Spurningar, FLÝG UPP, BLINDAR GÖTUR, Racks og fleira.








×