Lokað er fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bilaðs bíls í göngunum.
Unnið er að því að draga bílinn upp úr göngunum og gert er ráð fyrir að þau verði opnuð um leið og því verki lýkur. Þetta staðfestir þjónustufulltrúi hjá upplýsingasíma Vegagerðarinnar í samtali við mbl.is.