New York vann fyrsta leikinn

Jalen Brunson skoraði 43 stig.
Jalen Brunson skoraði 43 stig. AFP/SARAH STIER

New York Knicks lagði Indiana Pacers að velli í úrslitakeppni NBA í nótt í Madison Square Garden. Jalen Brunson var allt í öllu í 121:117-sigri Knicks.

Tyrese Haliburton, aðalmaður Indiana, glímir við bakmeiðsli og náði sér ekki á strik í nótt en bekkur Indiana-liðsins hélt liðinu á floti. Bekkur Indiana skoraði 46 stig gegn einungis þremur stigum frá varamönnum New York.

Þjálfari Knicks, Tom Thibodeau, er alræmdur fyrir að láta menn spila margar mínútur og það var engin breyting á því í nótt því lykilmenn Knicks spiluðu nánast hverja einustu mínútu leiksins.

Jalen Brunson var eins og áður segir í lykilhlutverki hjá Knicks og skoraði 43 stig, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar. Josh Hart skoraði 24 stig og spilaði allar 48 mínútur leiksins og Donte DiVincenzo skoraði 25 stig á tæpum 44 mínútum.

Myles Turner var stigahæstur í liði Indiana með 23 stig og Pascal Siakam bætti við 19. 

Tom Thibodeau er þjálfari New York Knicks.
Tom Thibodeau er þjálfari New York Knicks. AFP/SARAH STIER
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert