Líklegt byrjunarlið Íslands: Fáum forystu aftast Valur Páll Eiríksson skrifar 25. mars 2023 14:30 Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson kemur inn eftir leikbann. Getty/Robbie Jay Barratt Ísland mætir Liechtenstein í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2024 í Vaduz á morgun. Liðinu gekk ekki vel í fyrsta leik í Bosníu á fimmtudagskvöld og tapaði 3-0. Áhugavert verður að sjá hvort miklar breytingar verði á byrjunarliði liðsins á morgun.
Athyglisvert byrjunarlið blasti við í Bosníu á fimmtudagskvöld þar sem Arnór Ingvi Traustason var djúpur miðjumaður með tvo aðra sóknarþenkjandi leikmenn sér við hlið á miðsvæðinu í Hákoni Arnari Haraldssyni og Jóhanni Berg Guðmundssyni. Það hentaði illa í Bosníu en er miðja sem maður hefði frekar séð fyrir sér gegn lakari andstæðingi, líkt og Liechtenstein. Einnig var áhugavert að sjá Guðlaug Victor Pálsson í bakverði, fremur en miðsvæðis, þar sem virtist vanta forystu í öftustu línu á fimmtudag. Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, snýr hins vegar aftur úr leikbanni á morgun og líklegt þykir að hann taki sér stöðu í miðverðinum. Þá verður að teljast líklegt að Guðlaugur Victor byrji djúpur á miðjunni á morgun og Alfons Sampsted verði í hægri bakverði þar sem hann er öflugri sóknarlega en Guðlaugur í þeirri stöðu. Arnór Ingvi og Daníel Leó Grétarsson muni því víkja fyrir þeim Aroni og Alfons á morgun og Guðlaugur færist úr bakverði yfir á miðjuna. Liðið verði að öðru leyti óbreytt. Líklegt byrjunarlið Íslands Markvörður: Rúnar Alex Rúnarsson Hægri bakvörður: Alfons Sampsted Miðvörður: Aron Einar Gunnarsson Miðvörður: Hörður Björgvin Magnússon Vinstri bakvörður: Davíð Kristján Ólafsson Miðjumaður: Guðlaugur Victor Pálsson Miðjumaður: Jóhann Berg Guðmundsson Miðjumaður: Hákon Arnar Haraldsson Hægri kantmaður: Arnór Sigurðsson Vinstri kantmaður: Jón Dagur Þorsteinsson Framherji: Alfreð Finnbogason Ísland mætir Liechenstein klukkan 16:00 á morgun. Leiknum verður lýst beint á Vísi og verður landsliðinu fylgt vel eftir fram að leik.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Sjá meira