Varpa sökinni á Ísrael og heita hefndum Samúel Karl Ólason skrifar 28. nóvember 2020 07:40 Hér má sjá bílinn sem sprengdur var í loft upp til að stöðva bíl Fakhrizadeh. AP/Fars Hassan Rouhani, forseti Írans, hefur sakað Ísrael um að ráða Mohsen Fakhrizadeh, helsta kjarnorkuvísindamann Íran af dögum. Fakhrizadeh var hermaður auk þess að vera vísindamaður og var talinn yfirmaður leynilegrar kjarnorkuvopnaáætlunar Írans.
Hann var skotinn til bana í umsátri skammt frá Tehran, höfuðborg Írans. Fjölmiðlar þar í landi segja að árásin hafi byrjað á því að gamall pallbíll hafi verið sprengdur í loft og ökumaður Fakhrizadeh þannig þvingaður til að stöðva bíl vísindamannsins. Þá hafi minnst fimm árásarmenn skotið á bílinn. Í yfirlýsingu frá Rouhani, sem vitnað var í í ríkissjónvarpi Írans, sakar Rouhani Ísrael um morðið og segir að dauði hans muni ekki hægja á ætlunum ríkisins. Aðrir ráðamenn, eins og utanríkisráðherra Írans, höfðu áður sakað Ísrael um árásina og hafa heitið hefndum. Mohsen Fakhrizadeh situr hér hægra megin á myndinni, sem gefin var út af skrifstofu Ayatollah Ali Khamenei, leiðtoga Írans. Ekki er vitað hverjir hinir tveir mennirnir eru.AP/Skrifstofa leiðtoga Írans New York Times hefur eftir heimildarmönnum sínum í Bandaríkjunum að Ísrael hafi í raun staðið á bakvið árásina en að óvíst sé hvort Bandaríkjamenn hafi vitað af henni fyrirfram. Í kjölfar árásarinnar sögðu fjölmiðlar vestanhafs frá því að flugmóðurskipið USS Nimitz hefði verið sent aftur til Persaflóa. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna segir að skipið verði notað varðandi flutning hermanna frá Afganistan og Írak og það sé við hæfi að auka getu Bandaríkjanna á svæðinu samhliða heimflutningi hermanna. Nærri því ár er liðið frá því að herforinginn Qassem Soleimani, sem stýrði aðgerðum hers Írans utan landamæra ríkisins, var felldur í loftárás Bandaríkjanna í Írak. Íranir brugðust við þeirri árás með því að skjóta eldflaugum að herstöð Bandaríkjanna í Írak. Ráðamenn í Íran heita því fram að kjarnorukáætlun þeirra sé í friðsamlegum tilgangi og var formleg kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins lögð niður árið 2003. Ísraelsmenn og Bandaríkjamenn segja þó að vinnan hafi haldið áfram í laumi eftir það og árið 2018 nefndi Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael Fakhrizadeh sérstaklega í því samhengi.
Íran Ísrael Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Fleiri fréttir Kanna hvar Perry fékk Ketamínið Æfa notkun „taktískra“ kjarnorkuvopna Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Þurfa ekki að rannsaka eiturtilræði við rússneskan andófsmann Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Sjá meira