Fótbolti

Matty Cash á heimleið frá HM í Katar en alls ekki tómhentur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Matty Cash glímdi við Kylian Mbappe allan leikinn og var snemma farinn að toga í treyjuna sem hann fékk svo á endanum.
Matty Cash glímdi við Kylian Mbappe allan leikinn og var snemma farinn að toga í treyjuna sem hann fékk svo á endanum. AP/Christophe Ena

Pólski knattspyrnumaðurinn Matty Cash er á heimleið frá heimsmeistaramótinu í Katar eins og félagar hans í pólska landsliðinu eftir tap á móti Frökkum í sextán liða úrslitum keppninnar.

Matty Cash fer þó ekki alveg tómhentur heim því það eru margir sem öfunda hann af treyjunum sem hann krækti í eftir tvo síðustu leiki pólska liðsins á HM.

Matty Cash skipti um treyju við Kylian Mbappe eftir Frakkaleikinn í gær og hafði í síðustu viku fengið treyjuna frá Lionel Messi.

Mbappe og Messi hafa verið tveir af bestu leikmönnum HM til þessa og við erum að tala um mögulega besta fótboltamann sögunnar í Messi og framtíðar risastjörnu fótboltans næsta áratuginn.

Mbappe er nú kominn með fimm mörk og tvær stoðsendingar á HM en Messi er með þrjú mörk og eina stoðsendingu. Þeir gætu mæst í undanúrslitum vinni Frakkland og Argentína leiki sína í átta liða úrslitunum.

Hinn 25 ára gamli Cash er fæddur og uppalinn í Englandi en fékk pólsk ríkisfang í október 2021 þar sem foreldrar móður hans eru pólskir.

Cash spilaði sinn fyrsta landsleik 12. nóvember í fyrra og hefur spilað ellefu landsleiki síðan.

Cash spilar með Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni og hefur gert það frá september 2020 þegar hann skrifaði undir fimm ára samning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×