Toney veðjaði þrettán sinnum á tap félaga sinna Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2023 09:49 Ivan Toney fær ekki að spila fleiri leiki fyrir Brentford á þessu ári. Félagið auglýsir veðmálasíðu á treyjum sínum. Getty/Ryan Pierse Enska knattspyrnusambandið hefur nú greint nánar frá ástæðunum fyrir því að Ivan Toney, framherji Brentford og enska landsliðsins, var dæmdur í átta mánaða bann fyrir að veðja á leiki. Bannið var stytt eftir að Toney var greindur með veðmálafíkn.
Toney var dæmdur fyrir 232 brot á reglum um veðmál. Aganefnd enska sambandsins úrskurðaði hann í átta mánaða bann og sektaði hann um 50.000 pund fyrr í þessu mánuði. Toney, sem er 27 ára gamall, gerðist meðal annars sekur um þrettán veðmál á tap eigin félaga á árunum 2017 og 2018. Um sjö leiki var að ræða en Toney spilaði þó engan af þeim leikjum. Af þessum þrettán veðmálum voru ellefu á tap Newcastle þegar Toney var að láni frá félaginu, og tvö voru á leik Wigan og Aston Villa þegar Toney var að láni hjá Wigan en hann var ekki í leikmannahópnum í þeim leik. Refsiramminn fyrir að veðja gegn eigin liði er frá sex mánuðum til ævilangs banns en það hjálpar Toney að hafa aldrei verið í þeirri stöðu að geta sjálfur tapað leik til að hagnast fjárhagslega. The FA has published its written reasons for Ivan Toney's eight-month ban. The most serious breaches below: pic.twitter.com/AJObJZqiy0— Sam Cunningham (@samcunningham) May 26, 2023 Toney veðjaði einnig alls sextán sinnum á sigur eigin liðs, í fimmtán ólíkum leikjum, og spilaði ellefu af þeim leikjum. Hann veðjaði auk þess fimmtán sinnum á að hann myndi sjálfur skora, í níu leikjum, og voru veðmálin gerð þegar almenningur hafði ekki vitneskju um að Toney yrði í byrjunarliðinu. Styttra bann vegna veðmálafíknar Toney verður í banni fram til 16. janúar á næsta ári og hann má ekki mæta á æfingar hjá Brentford fyrr en í september. Í úrskurði aganefndar segir að Toney hafi verið greindur með veðmálafíkn eins og stjórnleysi hans varðandi veðmál, yfir fjögurra ára tímabil, hafi sýnt. Það hafi ráðið miklu um þá ákvörðun að stytta bannið um þrjá mánuði, niður í átta mánuði. Einnig segir að Toney sé hættur að veðja á fótbolta en að hann veðji enn á aðrar íþróttir og í spilavítum. Hann sé staðráðinn í að takast á við veðmálafíkn sína þegar leiktíðinni ljúki. Þá segir að tekið sé tillit til þess að Toney hafi verið tiltölulega ungur þegar brotin áttu sér stað, og að hann hafi ekki áður gerst sekur um brot utan vallar. Ekki sé þó ástæða til að skilorðsbinda neinn hluta refsingarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Í beinni: Ísland - Eistland | Strákarnir okkar þurfa góð úrslit ætli þeir á HM Handbolti Í beinni: Grindavík - Keflavík | Allt jafnt og mikilvægi leiksins mikið Körfubolti Í beinni: Real Madrid - Bayern München | Úrslitaleikur í boði Fótbolti Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ Fótbolti Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Handbolti Fleiri fréttir Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sjá meira