Fyrsta tap ársins hjá toppliðinu

Leikmenn Levante fagna öðru markinu.
Leikmenn Levante fagna öðru markinu. AFP

Topplið Atlético Madrid tapaði sínum fyrsta leik á árinu í spænsku 1. deildinni í fótbolta í dag er liðið lá fyrir Levante á heimavelli, 0:2. 

José Luis Morales kom Levante yfir á 30. mínútu og Jorge de Frutos tryggði 2:0-sigur Levante með marki í uppbótartíma. 

Þess á milli var Atlético Madrid mun sterkari aðilinn en Dani Cárdenas átti stórleik í marki Levante og átti stóran þátt í sigrinum. 

Þrátt fyrir tapið er Atlético með sex stiga forskot á granna sína í Real Madrid. Atlético er með 55 stig og Real með 49. Barcelona er í þriðja sæti með 46 stig og leik til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka