Bítast um íslensku ungstirnin Sindri Sverrisson skrifar 26. október 2020 12:01 Mörg félög hafa borið víurnar í Sveindísi Jane Jónsdóttur, sérstaklega eftir landsleikinn gegn Svíþjóð fyrir mánuði síðan. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson
Sveindís Jane Jónsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir vöktu mikla athygli með frammistöðu sinni í landsleikjunum við Lettland og Svíþjóð í síðasta mánuði. Ísland og Svíþjóð mætast að nýju síðdegis á morgun, í Gautaborg, í toppslag í undankeppni EM, og hafa verið við æfingar í borginni undanfarna daga. ,,Það var þvílíkt mikilvægt að fá traustið."#LeiðinTilEnglands #dottir pic.twitter.com/m0yt5fG8L1— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 24, 2020 Sveindís og Karólína voru í byrjunarliðinu í báðum landsleikjunum í september og þessar 19 ára gömlu landsliðskonur þurfa eftir framgöngu sína lítið annað að gera en að kinka kolli og segja já til að komast í atvinnumennsku. Þær sýndu sérstaklega hve vel þær geta spjarað sig á stærra sviði en í Pepsi Max-deildinni, þar sem þær eiga Íslandsmeistaratitil vísan með Breiðabliki, með leik sínum í 1-1 jafnteflinu við HM-bronslið Svía. Sveindís lagði til að mynda upp jöfnunarmark Íslands með löngu innkasti. Mesti áhuginn á Sveindísi og Hlín „Það var áhugi til staðar fyrir 1-1 jafnteflið við Svíþjóð en eftir leik varð áhuginn mikill. Það er hópur sænskra félaga sem hefur sett sig í samband og vill fá Sveindísi og Karólínu,“ segir Gylfi Sigurðsson, umboðsmaður, við Fotbollskanalen. Klippa: Jafntefli gegn stórliði Svía Gylfi, sem er búsettur í Svíþjóð, starfar hjá Total Football umboðsskrifstofunni sem starfar meðal annars fyrir Sveindísi, Karólínu og Valskonuna Hlín Eiríksdóttur. Hlín, sem er ári eldri en hinar tvær, hefur þegar leikið 16 A-landsleiki og skorað þrjú mörk. Hún kom inn á sem varamaður í leikjunum í september. „Í seinni hálfleiknum [gegn Svíþjóð] kom Hlín Eiríksdóttir inn á fyrir Karólínu og ég get sagt að mesti áhuginn er á Hlín og Sveindísi,“ segir Gylfi við Fotbollskanalen. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lék frábærlega gegn Svíþjóð og Lettlandi í síðasta mánuði.Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Aðspurður hvort að félög úr enn sterkari deildum en þeirri sænsku hafi sýnt íslensku ungstirnunum áhuga svarar Gylfi: „Nei, það hafa bara komið lauslegar fyrirspurnir um hvort að samningar þeirra séu að renna út. Aðaláhuginn er frá félögum í Svíþjóð og Noregi.“ Gylfi segir leikmennina ákveðna í að einbeita sér að leiknum mikilvæga við Svíþjóð og eftir það verði að koma í ljós hvað framtíðin beri í skauti sér hjá landsliðskonunum ungu.
EM 2021 í Englandi Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Glódís Perla: Sáttar með að fá þrjá aukadaga saman Stelpurnar okkar fengu mikilvæga aukadaga til æfinga í Gautaborg í þessari viku enda risastór leikur á dagskrá hjá þeim eftir helgi. 23. október 2020 13:00 Höfum búið til góðan markamun gegn Íslandi Svíþjóð stendur betur að vígi en Ísland í baráttunni um efsta sæti F-riðils í undankeppni EM kvenna í fótbolta, nú þegar fjórir dagar eru í að liðin mætist í Gautaborg. 23. október 2020 09:30 KSÍ reddaði vikuæfingabúðum fyrir kvennalandsliðið í Svíþjóð Knattspyrnusamband Íslands ákvað að senda kvennalandsliðið þremur dögum fyrr út til Svíþjóðar til að auðvelda liðinu undirbúninginn fyrir Svíþjóðarleikinn mikilvæga. 19. október 2020 13:01 Hólmfríður kemur inn í hópinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Svíum Hólmfríður Magnúsdóttir, leikmaður Avaldsnes í Noregi, hefur verið kölluð inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Svíum í undankeppni EM. 17. október 2020 16:30 Dagný skoraði þrennuna á öðrum fæti: Þreytandi að geta ekki leikið við son minn vegna verkja Dagný Brynjarsdóttir skoraði sína fyrstu þrennu á ferlinum þegar hún gat ekki notað hægri fótinn vegna meiðsla. Hún píndi sig í gegnum leikinn mikilvæga við Svíþjóð en gæti misst af næsta leik við sænska liðið. 16. október 2020 13:31 Földu löngu innköstin hennar Sveindísar gegn Lettum Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir segir að það hafi verið klókt hjá landsliðsþjálfaranum Jóni Þór Haukssyni að fela löngu innköstin hennar Sveindísar Jane Jónsdóttur gegn Lettum til að koma Svíum á óvart. 23. september 2020 11:10 Umfjöllun: Ísland - Svíþjóð 1-1 | Dýrmætt jafntefli við bronslið HM Ísland gerði 1-1 jafntefli við Svíþjóð, bronslið HM í fyrra, og hefði vel getað landað sigri í toppslag F-riðils undankeppni EM kvenna í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld. 22. september 2020 19:47 Mest lesið Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Körfubolti Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Enski boltinn Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Fótbolti Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Handbolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti Fleiri fréttir Nagelsmann framlengir samning sinn við þýska landsliðið Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Skulda Ronaldo meira en milljarð og hafa kannski ekki efni á Alberti „Er eiginlega ennþá í sjokki“ Romário tekur fram skóna til að spila með syninum „Þetta er töfrum líkast“ „Ég get ekki fundið réttu orðin“ Sjá meira
Glódís Perla: Sáttar með að fá þrjá aukadaga saman Stelpurnar okkar fengu mikilvæga aukadaga til æfinga í Gautaborg í þessari viku enda risastór leikur á dagskrá hjá þeim eftir helgi. 23. október 2020 13:00
Höfum búið til góðan markamun gegn Íslandi Svíþjóð stendur betur að vígi en Ísland í baráttunni um efsta sæti F-riðils í undankeppni EM kvenna í fótbolta, nú þegar fjórir dagar eru í að liðin mætist í Gautaborg. 23. október 2020 09:30
KSÍ reddaði vikuæfingabúðum fyrir kvennalandsliðið í Svíþjóð Knattspyrnusamband Íslands ákvað að senda kvennalandsliðið þremur dögum fyrr út til Svíþjóðar til að auðvelda liðinu undirbúninginn fyrir Svíþjóðarleikinn mikilvæga. 19. október 2020 13:01
Hólmfríður kemur inn í hópinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Svíum Hólmfríður Magnúsdóttir, leikmaður Avaldsnes í Noregi, hefur verið kölluð inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Svíum í undankeppni EM. 17. október 2020 16:30
Dagný skoraði þrennuna á öðrum fæti: Þreytandi að geta ekki leikið við son minn vegna verkja Dagný Brynjarsdóttir skoraði sína fyrstu þrennu á ferlinum þegar hún gat ekki notað hægri fótinn vegna meiðsla. Hún píndi sig í gegnum leikinn mikilvæga við Svíþjóð en gæti misst af næsta leik við sænska liðið. 16. október 2020 13:31
Földu löngu innköstin hennar Sveindísar gegn Lettum Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir segir að það hafi verið klókt hjá landsliðsþjálfaranum Jóni Þór Haukssyni að fela löngu innköstin hennar Sveindísar Jane Jónsdóttur gegn Lettum til að koma Svíum á óvart. 23. september 2020 11:10
Umfjöllun: Ísland - Svíþjóð 1-1 | Dýrmætt jafntefli við bronslið HM Ísland gerði 1-1 jafntefli við Svíþjóð, bronslið HM í fyrra, og hefði vel getað landað sigri í toppslag F-riðils undankeppni EM kvenna í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld. 22. september 2020 19:47