Keane hneykslaður á Kane: „Líkamstjáningin og frammistaðan, guð minn góður“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. september 2021 13:31 Roy Keane lét Harry Kane heyra það eftir leikinn gegn Chelsea. getty/Sebastian Frej Roy Keane fannst lítið til frammistöðu Tottenham gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær koma. Og hann var sérstaklega hneykslaður á Harry Kane.
Chelsea vann leikinn með þremur mörkum gegn engu. Þetta var annað 3-0 tap Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í röð eftir að hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína. „Chelsea voru frábærir. Við vitum hvað þeir geta núna. Miklir hæfileikar, mikil orka og mikill vilji. Þetta voru menn gegn drengjum. Ég trúði ekki hversu hversu lélegir Spurs voru,“ sagði Keane á Sky Sports eftir leikinn. „Þú getur átt slæman dag og stundum taparðu fyrir betra liði en það vantaði allan vilja og það sást í öllum mörkunum. Tölum um að vilja fórna sér.“ Micah Richards benti á að Tottenham hefði spilað ágætlega í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var markalaus. Keane gaf lítið fyrir það. „Leikurinn er níutíu mínútna langur. Það skiptir ekki máli þótt þú hafir verið fínn í fyrri hálfleik. Þú þarft að komast í gegnum erfiða kafla. Þú reynir að þrauka,“ sagði Keane. "I'm pretty angry watching #THFC today..." "Kane's body language and performance today - oh my goodness." Roy Keane and Graeme Souness were *not* impressed with Tottenhampic.twitter.com/THzbTWKtRC— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) September 20, 2021 Gamla Manchester United-hetjan lét Kane svo heyra það og dró hvergi af í gagnrýni sinni. „Chelsea er stórkostlegt lið. Við sáum það þegar varamennirnir komu inn á. Það truflar mig ekki að þeir hafi ekki verið nógu góðir og ég tel Kane þar með. Líkamstjáningin og frammistaðan hjá honum, guð minn góður. Ég varð frekar reiður að horfa á Spurs í dag.“ „Við sáum muninn sérstaklega í öðru markinu, viljann til að vilja vinna fótboltaleik. Chelsea vann boltann aftur en leikmenn Tottenham gerðu ekki grunnatriði leiksins, setja pressu á andstæðinginn og vilja fórna sér. Það kemur innan frá. Við getum kannski gagnrýnt þjálfarann og aðra hluti en pressaðu, fórnaðu þér.“ Næsti leikur Tottenham er gegn Wolves í 3. umferð enska deildabikarsins á miðvikudaginn. Tottenham mætir svo Arsenal í Norður-Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Íslenski boltinn Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Fótbolti Lést í fyrsta bardaga sínum Sport Lygileg toppbarátta í Danmörku Fótbolti Fernandes íhugar að stökkva frá borði Enski boltinn „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ Körfubolti Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Enski boltinn „Búinn að vera tilfinningarússibani“ Íslenski boltinn Fury eldri blóðugur í aðdraganda sögulegs bardaga Sport „Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“ Körfubolti Fleiri fréttir Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ Fyrsti stóri titill United-kvenna Enn ekkert skorað í umspilinu Trossard skaut Arsenal á toppinn Leeds í fínum málum eftir fyrri leikinn Arteta hælir Ten Hag og vonast til að hann haldi áfram Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Gvardiol skaut City á toppinn Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Cole Palmer valinn bestur í apríl Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Sjá meira