Louie Anderson er látinn

Louie Anderson árið 2018.
Louie Anderson árið 2018. AFP

Bandaríski grínistinn Louie Anderson er látinn, 68 ára að aldri. Anderson var hvað þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndum á borð við Coming to America og Ferris Bueller's Day off. 

Hann lést úr krabbameini í Las Vegas á föstudag. 

Anderson hlaut Emmy-verðlaunin árið 2016 fyrir hlutverk sitt í Baskets auk þess sem hann hafði tvisvar áður fengið tilnefningu til verðlaunanna. 

Anderson skrifaði einnig fjölmargar bækur á ferli sínum, meðal annars bókina Dear Dad sem fjallar um samband leikarans við föður sinn, sem var alkóhólisti. 

Anderson var fæddur og uppalinn í Saint Paul í Minnesotaríki og hóf feril sinn sem grínisti árið 1984. 

Louie Anderson á Emmy verðlaununum 2016.
Louie Anderson á Emmy verðlaununum 2016. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur mun meiri áhrif á umhverfi þitt en þú sjálfur heldur. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur mun meiri áhrif á umhverfi þitt en þú sjálfur heldur. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav