„Kristín drottning tekur þetta að sér“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2021 11:31 Kristín Guðmunsdóttir í leik með HK-liðinu. Vísir/Bára HK þarf væntanlega að treysta á aldursforseta deildarinnar eftir að lykilmaður Kópavogsliðsins datt út á dögunum.
Svava Kristín Grétarsdóttir og sérfræðingar hennar í Seinni bylgjunni fóru yfir breytingarnar á Olís deild kvenna í handbolta síðan að síðast var spilað í deildinni fyrir meira en hundrað dögum síðan. Svava Kristín var með sérfræðingana Sunnevu Einarsdóttur og Þorgerði Önnu Atladóttur með sér í þættinum og þær tóku meðal annars fyrir lið HK sem mætir með breytt lið. Kvennalið HK varð nefnilega fyrir mikilli blóðtöku á meðan ekkert var spilað í þrjá mánuði í Olís deild kvenna í handbolta. „Það eru talsverðar breytingar á liði HK. Þar er ansi stór leikmaður sem er dottin út því Vala Þorsteins er ólétt og hún verður ekki meira með,“ sagði Svava Kristín Grétarsdóttir. Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoraði fjórtán mörk í fyrstu þremur leikjum HK á leiktíðinni. „Þetta er stór biti og það er enginn að fara fylla upp í hennar skarð,“ sagði Sunneva Einarsdóttir en Þorgerður Anna Atladóttir var þá fljót að minna hana á eitt. „Kristín drottning stígur fram og tekur þetta að sér,“ sagði Þorgerður Anna og Sunneva tók undir það. Þar erum við að tala um reynsluboltann Kristínu Guðmundsdóttir sem verður 43 ára gömul í sumar. Klippa: Seinni bylgjan: Breytingar hjá kvennaliði HK „Hún tekur þetta að sér og gerir það vel. Hún mun stjórna þessu,“ sagði Sunneva. „Eins og við vorum búnar að tala um þá var Vala lykilleikmaður í þessu liði og hún stjórnaði sóknarleiknum og sá um þetta,“ sagði Þorgerður Anna. „Stjórnaði hljómsveit og kór,“ skaut Sunneva inn í. „Hvað munar tuttugu árum á Völu og Kristínu,“ spurði þá Svava Kristín og bætti við. „Við vitum öll hvernig Kristín er. Hún er geggjuð og rífur alla áfram. Það er fáránlegt hvað hún er ennþá góð en hún er samt orðin þetta gömul. Hún er á fimmtugsaldri,“ sagði Svava Kristín. „Hún er komin á þennan aldur og hefur aðeins dregið sig í hlé síðustu tvö tímabil. Hún hefur verið meira í vörninni. Svo á hún aftur að koma inn núna og á þá að setja allt á herðarnar á henni? Ég er ekki viss um að það myndi gangi eitthvað svakalega vel,“ sagði Þorgerður Anna. Það má sjá umfjöllun þeirra um missi HK hér fyrir ofan.
Olís-deild kvenna Seinni bylgjan HK Mest lesið „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Handbolti Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Íslenski boltinn Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Enski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Sú Besta, stórleikur á Englandi, úrslitakeppni NBA og margt fleira Sport Fyrrverandi hirti fernu-boltann Enski boltinn „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ Körfubolti Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Enski boltinn Fleiri fréttir Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sveinn Andri samdi við Stjörnuna Ísland í erfiðum riðli á EM Jóhanna Margrét skiptir um lið innan Svíþjóðar Fimmtán dagar á milli leikja í sama einvígi í Olís deild karla Sebastian tekur við kvennaliði Víkings Tap hjá Íslendingaliðinu í fyrsta leik 8-liða úrslita Norska stórliðið örugglega í undanúrslit HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga „Mættum klárir og ætluðum að svara fyrir laugardaginn“ Alfreð og Dagur saman í riðli á Ólympíuleikunum Spenntur fyrir að halda HM með Íslendingum HM í handbolta 2031 fer fram á Íslandi Magnaður Bjarki Már þegar Veszprém svo gott sem tryggði sér titilinn ÍBV sendi ÍR í sumarfrí Stefán Arnars: Fram er með fjóra og við einn Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 21-25 | Stjörnukonur sendar í sumarfrí Stefán Rafn leggur skóna á hilluna Uppgjörið, viðtöl og myndir: Haukar – ÍBV 31-37 | Eyjamenn sendu Hauka í sumarfrí KA komið í sumarfrí en FH heldur áfram Magdeburg bikarmeistari eftir stórsigur gegn Melsungen Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga