Fótbolti

Atalanta lyfti sér upp fyrir Juventus

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leikmenn Atalanta fagna marki sínu vel og innilega.
Leikmenn Atalanta fagna marki sínu vel og innilega. Pier Marco Tacca/Getty Images

Liðsmenn Atalanta eru komnir upp í þriðja sæti Serie A eftir 1-0 sigur gegn Juventus í dag. Nú er nánast ómögulegt fyrir Juventus að verja ítalska deildarmeistaratitilinn, en þeir eru 12 stigum á eftir toppliði Inter.

Nokkuð jafnræði var með liðunum í dag, en ekkert mark var skoraði í fyrri hálfleik.

Það stefndi allt í markalaust jafntefli, þangað til á 87. mínútu þegar Ruslan Malinovsky náði að brjóta ísinn eftir stoðsendingu frá Josip Ilicic.

Sigur Atalanta þýðir að þeir lyfta sér upp í þriðja sæti deildarinnar með 64 stig, tveimur stigum meira en Juventus. Ítölsku meistararnir eru því komnir niður í fjórða sæti, 12 stigum á eftir Inter í toppsætinu. 

Juventus á aðeins sjö leiki eftir og getur því mest fengið 21 stig í viðbót. Inter leikur gegn Napoli í kvöld og með sigri endurheimta þeir 11 stiga forskot á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×