Leggja verði fram vegvísi að NATO aðild Úkraínu Heimir Már Pétursson skrifar 23. maí 2023 19:16 Edgars Rinkēvičs utanríkisráðherra Lettlands tekur við formennsku í Evrópuráðinu og fundarhamri úr höndum Þórdísar Kolbrúar R. Gylfadóttur utanríkisráðherra á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Hörpu. Katrín Jakobsdóttir og Denys Shmyhal forsætisráðherra Úkraínu fylgjast með. Vísir/Vilhelm Utanríkisráðherra Lettlands segir Úkraínu eiga heima í Atlandshafsbandalaginu og bandalagið verði að leggja fram vegvísi að því hvernig að það muni gerast. Nú heyrist raddir um að enda þurfi stríðið áður en Úkraína hafi unnið hertekin landsvæði til baka en það megi ekki gerast því Rússar muni ganga á lagið og hervæðast á ný.
Edgars Rinkēvičs utanríkisráðherra Lettlands segir vestur Evrópu ekki hafa tekið mikið mark á viðvörunum NATO ríkja í austri við árásar- og landvinnigastefnu Rússa fyrr en eftir innrás þeirra í Úkraínu í febrúar í fyrra. Þá hafi loksins verið hlustað á viðvaranir þessara ríkja sem þekktu vel til kúgunartakta Rússa frá löngu nábyli við þá. Edgars Rinkēvičs segir að Rússar muni ganga á lagið verði samið um frið í Úkraínu áður en Úkraínumönnum hafi tekist að vinna öll landsvæði sín til baka.Vísir/Vilhelm Nú bæri á því að sumir vildu friðþægjast við Rússa og töluðu um að enda þyrfti stríðið fljótlega. Það mætti hins vegar ekki frysta þá hernaðarastöðu sem nú væri, því þá muni Rússar ganga á lagið. „Nokkur tími líður. Rússland lappar upp á her sinn og vopnvæðist á ný. Það kemur hernaðarvél sinni aftur á réttan kjöl, hervæðist og gerir árás á ný. Vegna þess að Rússland mun ekki hætta.“ Hann vari við því að Nato ríkin verði meðvirk málflutningi Rússa. Halda verði áfram að sjá Úkraínu fyrir öllu því sem landið þurfi til sigurs. Ekki væri hægt að treysta Rússum þar sem almenningur byggi ekki við frelsi og lýðræði og Rússland í raun einræðisríki. „Við höfum séð að fjölmiðlafrelsi, sjálfstæði dómstóla, réttur fólks til að mótmæla, að stofna stjórnmálaflokk sem eru í raun óháðir var fyrir borð borinn fyrir mörgum árum. Þetta var stigvaxandi ferli.“ Vesturlönd hafi hundsað þessa þróun og megi ekki bregðast nú því Putin muni ganga eins langt og Vesturlönd hleypi honum. Úkraína hafi sýnt hversu megnug hún væri í vörnum gegn innrás Rússa og ætti heima í NATO. Rinkēvičs telur ólíklegt að samstaða um þetta náist meðal aðildarríkjanna fyrir leiðtogafund NATO í Vilnius í júlí. Enn séu deildar meiningar. NATO ríkin verði hins vegar að leggja Úkraínu til vegvísi að aðild. „Við erum að þrýsta á um skýra leið fyrir Úkraínu til að ganga í NATO. Skýr viðmið, skýran vegvísi. Við sjáum hvernig þetta gengur upp fyrir miðjan júlí,“ segir Edgars Rinkēvičs.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Lettland NATO Tengdar fréttir Stuðningur við Úkraínu hljóti að vega þyngra en „sérhagsmunir í landbúnaði“ Alþingi samþykkti í fyrra að tillögu fjármála-og efnahagsráðherra að fella niður tolla á vörur sem koma frá Úkraínu en þetta var liður í stuðningi Íslands við efnahagslíf Úkraínu á stríðstímum. Í lok mánaðar rennur ákvæðið út og framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda óttast að fjármálaráðherra nái ekki að endurnýja ákvæðið í tæka tíð. 23. maí 2023 15:33 Segjast hafa tekið rússneskan bæ undir sína stjórn Samtök hópa sem andsnúnir eru rússneskum yfirvöldum fullyrða að þeir hafi náð undir sína stjórn rússneska bænum Kozinka sem staðsettur er í Belgorod héraði skammt frá landamærum landsins að Úkraínu. Hóparnir segjast einnig hafa ráðist á nágrannabæinn Grayvoron. 22. maí 2023 23:46 Rússar vara við „gríðarlegri áhættu“ vegna þotnanna Rússar vara Vesturlönd við því að senda Úkraínumönnum bandarískar F-16 orrustuþotur og segja Vesturlönd halda áfram stigmögnun stríðsins. Selenskí segir tíðindin söguleg. 20. maí 2023 20:24 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Fleiri fréttir Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sjá meira
Stuðningur við Úkraínu hljóti að vega þyngra en „sérhagsmunir í landbúnaði“ Alþingi samþykkti í fyrra að tillögu fjármála-og efnahagsráðherra að fella niður tolla á vörur sem koma frá Úkraínu en þetta var liður í stuðningi Íslands við efnahagslíf Úkraínu á stríðstímum. Í lok mánaðar rennur ákvæðið út og framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda óttast að fjármálaráðherra nái ekki að endurnýja ákvæðið í tæka tíð. 23. maí 2023 15:33
Segjast hafa tekið rússneskan bæ undir sína stjórn Samtök hópa sem andsnúnir eru rússneskum yfirvöldum fullyrða að þeir hafi náð undir sína stjórn rússneska bænum Kozinka sem staðsettur er í Belgorod héraði skammt frá landamærum landsins að Úkraínu. Hóparnir segjast einnig hafa ráðist á nágrannabæinn Grayvoron. 22. maí 2023 23:46
Rússar vara við „gríðarlegri áhættu“ vegna þotnanna Rússar vara Vesturlönd við því að senda Úkraínumönnum bandarískar F-16 orrustuþotur og segja Vesturlönd halda áfram stigmögnun stríðsins. Selenskí segir tíðindin söguleg. 20. maí 2023 20:24